Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1669  —  808. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Ásbjörns Óttarssonar
um breytingar á gjaldskrám stofnana ráðuneytisins.

    1.     Hvaða gjaldskrárbreytingar fyrir stofnanir ráðuneytisins hefur ráðherra staðfest á undanförnum 12 mánuðum?
    Gjaldskrá vegna eftirlits með fiskeldisstöðvum, nr. 928/2011, sem sett var samkvæmt heimild í lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, var gefin út 10. október 2011.
    Í gjaldskrá frá 1. desember 2005 vegna eftirlits Fiskistofu með fiskeldi var einungis kveðið á um innheimtu kostnaðar vegna eftirlits með eldi nytjastofna sjávar. Þar var kveðið á um að eldisstöðvar með rekstrarleyfi frá Fiskistofu með minni en 200 tonna ársframleiðslu skyldu greiða árlegt eftirlitsgjald, 20.000 kr. Stærri stöðvar með meiri framleiðslu skyldu greiða 30.000 kr. í árlegt eftirlitsgjald.

    2.     Hve miklar hækkanir eða lækkanir hafa orðið á gjaldskránum við þessar breytingar?
    Í gjaldskrá frá 10. október 2011 (sbr. svar hér að framan) er einnig kveðið á um gjald vegna eftirlits með vatnafiskum. Árlegt eftirlitsgjald til Fiskistofu samkvæmt henni er 25.000 kr. fyrir minni eldisfyrirtæki og 50.000 kr. fyrir stærri eldisfyrirtæki.
    Hækkun úr 20.000 kr. í 25.000 kr. annars vegar og úr 30.000 kr. í 50.000 kr. hins vegar skýrist af verðlagshækkunum, en einnig af auknum eftirlitskröfum.

    3.     Hvaða breytingar á gjaldskrám bíða afgreiðslu í ráðuneytinu?
    Breytingar á gjaldskrám verkefna sem falla undir verkefnasvið Matvælastofnunar eru til skoðunar í ráðuneytinu.