Fjárlög 2013.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar stuttu ræðu hér áðan. Mig langar að fara í þetta á sama hátt og margir aðrir þingmenn. Við höfum rætt það hér í þinginu, og það er ljóst innan háskólans og framhaldsskólans og innan samfélagsins, að kallað er eftir aukinni tæknimenntun. Á bls. 269 í þessu plaggi stendur að framlög til framhaldsskóla lækki almennt ekki ef frá séu talin framlög til stórra verknámsskóla sem lækka. Hvernig fer það saman að samfélagið og atvinnulífið kalli á aukna tæknimenntun og á sama tíma lækkum við fjárframlög til þeirra skóla? Mig langar gjarnan að hæstv. ráðherra ræði það aðeins. Samhliða setjum við svo ákveðið fjármagn í Vinnustaðanámssjóð til að stuðla að námi þeirra nemenda sem þar eru. Það er ekki samfella og það eru engin heilindi þarna að baki og mig langar að biðja hæstv. ráðherra um að fara nánar í það.
Mig langar líka að biðja ráðherrann um að útskýra enn frekar fyrir okkur fjárframlög sem varða Kvikmyndaskólann. Það heitir Kvikmyndaskóli Íslands í fjárlögunum 2013, hann fær þar 79 milljónir. Engar fjárveitingar eru svo 2014, 2015 og 2016. Á bls. 32 heitir þetta hins vegar „Menntun á sviði kvikmyndagerðar“ og þá er peningur inni upp á 58 milljónir. Ef það er hugsunin að halda þessum skóla til streitu af hverju eru þá fjármunir ekki inni undir nafninu Kvikmyndaskólinn? Og ég spyr að þessu þó að menn ætli sér síðan að fara í einhverjar samræður um það hvernig eigi að halda utan um þetta og hvernig menntunin eigi að vera. Þarna er líka eitthvað sem er ekki nægjanlega skýrt. Það er óþolandi fyrir skóla eins og Kvikmyndaskóla Íslands að þurfa að reka sig á samningum sem hann veit ekkert hvernig verða 2013 vegna þess að samningurinn rennur út um áramót. Þetta finnst mér skipta máli og ég vil gjarnan fá ívið betri útskýringar hjá hæstv. menntamálaráðherra.
Mig langar líka að spyrja hæstv. menntamálaráðherra að því hver sé framtíðarsýn ráðuneytisins fyrir Náttúruminjasafn Íslands. Enn eru inni 23 milljónir í Náttúruminjasafnið. Ráðuneytið hefur ekki ráðið nýjan safnstjóra. Virðulegur þjóðminjavörður gegnir því starfi nú sem settur forstjóri Náttúruminjasafnsins. Það er ekkert inni á næstu árum um það til 2016, engar aukafjárveitingar til Náttúruminjasafnsins, sem segir manni að það er ekkert sérstakt á ferðinni þar hvað varðar húsnæðismálin. Í fyrstu atrennu vil ég gjarnan spyrja hæstv. ráðherra um þessa þætti.