Ummæli forsætisráðherra um stöðu kjarasamninga

Fimmtudaginn 20. september 2012, kl. 11:11:26 (0)


141. löggjafarþing — 7. fundur,  20. sept. 2012.

ummæli forsætisráðherra um stöðu kjarasamninga.

[11:11]
Horfa

Forseti (Ragnheiður Ríkharðsdóttir):

Í fyrsta lagi vill forseti geta þess að dagskrá þingsins í dag liggur fyrir og að svo stöddu verður henni ekki breytt. Í öðru lagi biður forseti hv. þingmenn og hæstv. ráðherra að ræða fundarstjórn forseta en ekki efnislegar umræður sem hér hafa farið fram.