Byggðastofnun

Þriðjudaginn 16. október 2012, kl. 14:46:49 (0)


141. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2012.

Byggðastofnun.

162. mál
[14:46]
Horfa

atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 106/1999, um Byggðastofnun, með síðari breytingum. Þetta er á þskj. 162.

Frumvarp þetta var lagt fram á 140. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu og er endurflutt með aðeins einni breytingu og er sú breyting í samræmi við nefndarálit umhverfis- og samgöngunefndar frá nefndu 140. löggjafarþingi.

Með frumvarpinu er lagt til að ákvarðanir Byggðastofnunar sem lúta að veitingu lána eða ábyrgða og umsýslu tengdri þeim, samanber 1. mgr. 11. gr. laganna um Byggðastofnun, verði endanlegar á stjórnsýslustigi, þ.e. að þær ákvarðanir verði ekki kæranlegar til ráðuneytisins líkt og nú er. Einnig er lagt til í frumvarpinu að kveðið verði á um það í lögum að reglur stjórnar Byggðastofnunar um lán- og ábyrgðarveitingar skuli hafa hlotið staðfestingu ráðherra áður en þær öðlast gildi og er það í samræmi við þessa nefndu breytingartillögu úr nefndaráliti umhverfis- og samgöngunefndar á 140. löggjafarþingi.

Eitt af meginhlutverkum Byggðastofnunar er veiting lána og ábyrgða samkvæmt nánar tilgreindum skilyrðum. Litið hefur verið svo á að ákvarðanir sem stofnunin tekur á grundvelli þessarar lagaheimildar um veitingu eða synjun lána eða ábyrgða séu stjórnvaldsákvarðanir í skilningi stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og þar með kæranlegar til ráðherra samkvæmt almennri kæruheimild 26. gr. stjórnsýslulaga. Aðrar ákvarðanir Byggðastofnunar sem standa í tengslum við lán eða ábyrgðir sem veitt eru á grundvelli heimildar í 1. mgr. 11. gr., þ.e. ákvarðanir tengdar umsýslu þegar veittra lána og ábyrgða hafa hins vegar almennt ekki verið taldar til stjórnvaldsákvarðana í þessum skilningi. Þær eru því almennt ekki kæranlegar til ráðherra að gildandi lögum, þótt umrædd umsýsla lúti almennu eftirliti ráðherra.

Ráðuneytið hefur haft til skoðunar hvort æskilegt sé að gera breytingar á lögum um Byggðastofnun sem miða að því að fella niður möguleika aðila til að kæra til ráðuneytisins ákvarðanir stofnunarinnar sem lúta að veitingu lána og ábyrgða og umsýslu tengdri þeim. Í því skyni hefur verið horft til annarra stjórnvalda, svo sem Tækniþróunarsjóðs sem er undir yfirumsjón atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, en ákvarðanir sem teknar eru þar um að veita styrki úr Tækniþróunarsjóði eru endanlegar á stjórnsýslustigi. Þetta er með mismunandi hætti í stjórnsýslunni en með flest það sem hefur með lánveitingar og styrki að gera hefur verið litið svo á að um endanlega ákvörðun sé að ræða og því eru slíkar ákvarðanir almennt ekki kæranlegar til ráðherra í hinu venjulega fyrirkomulagi.

Hjá Byggðastofnun hefur byggst upp yfirgripsmikil þekking á veitingu og umsýslu með lán og ábyrgðir og ríkar kröfur eru gerðar til stofnunarinnar um faglega málsmeðferð við úrlausn slíkra mála. Þá þurfa stjórnarmenn stofnunarinnar einnig nú að uppfylla hæfisskilyrði Fjármálaeftirlitsins til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum. Ákvarðanir Byggðastofnunar sem lúta að veitingu lána eða ábyrgða og umsýslu tengdri þeim skipta hundruðum á ársgrundvelli og telja verður óheppilegt að allir þeir sem eru óánægðir með ákvarðanir stofnunarinnar um veitingu lána eða ábyrgða eða umsýslu tengda þeim, t.d. skilmálabreytingar, geti kært slíkar ákvarðanir til ráðherra. Hvað varðar eftirlit með starfsemi Byggðastofnunar sinnir ráðuneytið almennu eftirliti sem lýtur að því hvort kerfisleg vandamál séu fyrir hendi, t.d. með könnun á verkferlum. Jafnframt bendi ég á að Byggðastofnun er lánafyrirtæki samkvæmt lögum sem lýtur eftirliti Fjármálaeftirlitsins. Þannig hefur Fjármálaeftirlitið eftirlit með Byggðastofnun í starfi í samræmi við lög og reglur eins og þær eru á hverjum tíma.

Með frumvarpinu er því lagt til að ákvarðanir Byggðastofnunar, þ.e. þær sem lúta að þessum þáttum, að veitingu lána eða ábyrgða eða umsýslu tengdri þeim, verði endanlegar á stjórnsýslustigi. Enn fremur er, til að taka af allan vafa, lagt til að kveðið verði á um að hið sama eigi við um umsýslu viðkomandi lána og ábyrgða.

Nái frumvarpið óbreytt fram að ganga verða umræddar ákvarðanir Byggðastofnunar ekki kæranlegar til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins líkt og nú er. Hins vegar gilda ákvæði stjórnsýslulaga um kærur til æðra stjórnvalds eftir sem áður um allar aðrar stjórnvaldsákvarðanir Byggðastofnunar, allar aðrar en þær sem lúta beint að lánveitingum og lánaumsýslu. Svo að sjálfsögðu eru dómstólarnir til staðar ef svo ber undir.

Hæstv. forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og til 2. umr.