Stjórnarráð Íslands

Miðvikudaginn 17. október 2012, kl. 16:24:45 (0)


141. löggjafarþing — 20. fundur,  17. okt. 2012.

Stjórnarráð Íslands.

214. mál
[16:24]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er auðvitað atriði sem við höfum farið yfir í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd en ég held að það sé alveg ljóst, og hv. þingmaður mun komast að því, að í einu og öllu hefur verið farið eftir stjórnarskrá og stjórnarráðslögum í því máli sem hv. þingmaður tekur upp. Við skulum svo ræða um það við 2. umr. ef annað kemur í ljós.