Fundargerð 141. þingi, 102. fundi, boðaður 2013-03-13 19:50, stóð 19:49:33 til 22:04:02 gert 14 8:9
Alþingishúsið [prenta uppsett í dálka] [<-][->]

102. FUNDUR

miðvikudaginn 13. mars,

kl. 7.50 síðdegis.

Dagskrá:


Almennar stjórnmálaumræður.

[19:49]

Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og hafði hver þingflokkur 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur í síðustu umferð. Þingmenn utan flokka töluðu síðastir í hverri umferð og höfðu 4 mínútur.

Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð og Hreyfingin.

Ræðumenn flokkanna voru: Fyrir Sjálfstæðisflokk talaði í fyrstu umferð Bjarni Benediktsson, 2. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri Kristján Þór Júlíusson, 4. þm. Norðausturkjördæmis, en í þeirri þriðju Ragnheiður E. Árnadóttir, 2. þm. Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru Árni Páll Árnason, 1. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, í annarri, en í þriðju umferð Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Sigurður Ingi Jóhannsson, 3. þm. Suðurkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Eygló Harðardóttir, 7. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð töluðu í fyrstu umferð Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í annarri Árni Þór Sigurðsson, 5. þm Reykjavíkurkjördæmis norður, en Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6. þm. Norðvesturkjördæmis í þriðju umferð.

Fyrir Hreyfinguna töluðu í fyrstu umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurkjördæmis, í annarri umferð talaði Þór Saari, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, og Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þeirri þriðju.

Ræðumenn utan flokka voru Guðmundur Steingrímsson, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, sem talaði síðastur í fyrstu umferð, Jón Bjarnason, 2. þm. Norðvesturkjördæmis, talaði síðastur í annarri umferð og Róbert Marshall, 8. þm. Suðurkjördæmis, talaði síðastur í þriðju umferð.

Horfa

Fundi slitið kl. 22:04.

---------------