Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 171. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 508  —  171. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011–2014.


Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið sem er endurflutt frá 140. löggjafarþingi. Samhliða umfjöllun um tillöguna á 140. þingi var fjallað um fjarskiptaáætlun til tólf ára, 2011–2022, og fékk nefndin þá á sinn fund fjölda gesta. Meiri hluti nefndarinnar lagði þá til að tillagan yrði samþykkt.
    Meiri hlutinn ítrekar þau sjónarmið sem koma fram í nefndaráliti frá 140. þingi (sjá fylgiskjal). Í álitinu kom m.a. fram sú skoðun að hann teldi eðlilegt að opinberar íslenskar stofnanir og deildir innan þeirra beri íslensk heiti.
    Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Í stað orðanna „Stofnað verði CERT-ÍS-öryggis- og viðbragðsteymi vegna ómissandi netþjónustu fyrir árslok 2011“ í l-lið 3. hluta tillögunnar komi: Stofnuð verði netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar til verndar ómissandi upplýsingainnviðum gegn netárásum.


Alþingi, 15. október 2012.

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,
form., frsm.
Ólína Þorvarðardóttir.
Róbert Marshall.

Mörður Árnason.
Álfheiður Ingadóttir.





Fylgiskjal.


Nefndarálit með breytingartillögu frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar um tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára fjarskiptaáætlun
fyrir árin 2011–2014.

(Þingskjal 1477, 343. mál 140. löggjafarþings.)


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigurberg Björnsson, Veru Sveinbjörnsdóttur og Steinunni Valdísi Óskarsdóttur frá innanríkisráðuneyti, Böðvar Jónsson og Pétur Jóhannesson frá Reykjanesbæ, Þorvarð Hjaltason frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Gunnar H. Gunnarsson og Örn Gunnarsson frá Samtökum um betri byggð, Hrein Haraldsson og Eirík Bjarnason frá Vegagerðinni, Karl Sigurðsson, Örn Sigurðsson og Ólaf Bjarnason frá Reykjavíkurborg, Ármann Kr. Ólafsson, Steingrím Hauksson og Ólaf Þór Gunnarsson frá Kópavogsbæ, Gunnar Val Sveinsson frá Samtökum ferðaþjónustunnar, Árna Jóhannsson og Sigþór Sigurðsson frá Samtökum iðnaðarins, Lísbet Einarsdóttur frá Samtökum verslunar og þjónustu, Friðrik J. Arngrímsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Oddnýju S. Þórðardóttur, Evu Sigurbjörnsdóttur, Ingólf Benediktsson og Guðlaug Ágústsson frá Árneshreppi, Ástu Pálmadóttur, Stefán Vagn Stefánsson, Bjarna Jónsson og Sigfús J. Sigfússon frá Sveitarfélaginu Skagafirði, Harald Sigþórsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, Ólaf Guðmundsson frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, Einar Magnús Magnússon og Mörtu Jónsdóttur frá Umferðarstofu, Kristin Jónasson, Hrefnu Bryndísi Jónsdóttur og Davíð Pétursson frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, Bjarna Jónsson og Ágúst Þór Bragason frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi, Sigurð Pétursson, Elís Jónatansson, Eyrúnu Ingibjörgu Sigþórsdóttur, Guðbrand Sverrisson, Gústaf Jökul Ólafsson, Friðbjörgu Matthíasdóttur, Guðfinnu Hreiðarsdóttur, Eirík Kristjánsson, Jón Gísla Jónsson, Magnús Ólafs Hansson og Aðalstein Óskarsson frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga, Björn Hafþór Guðmundsson frá Samtökum sveitarfélaga á Austurlandi, Stefán Boga Sveinsson frá Fljótsdalshéraði, Hrafnkel Gíslason og Björn Geirsson frá Póst- og fjarskiptastofnun, Sæmund Þorsteinsson og Þór Jens Þórisson frá Skiptum og Hrannar Pétursson og Sigurð Inga Hauksson frá Vodafone. Umsagnir bárust frá Bláskógabyggð, Byggðastofnun, Bændasamtökum Íslands, Fljótsdalshéraði, Grindavíkurbæ, Hafnasambandi Íslands, Hrunamannahreppi, Hörgársveit, Kópavogsbæ, Neyðarlínunni ohf., Persónuvernd, Póst- og fjarskiptastofnun, Rangárþingi ytra, Reykjanesbæ, ríkislögreglustjóra, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins, Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Skiptum hf., Skútustaðahreppi, Sveitarfélaginu Skagafirði, Vegagerðinni og Vodafone.
    Tillaga þessi er um fjarskiptaáætlun til fjögurra ára, árin 2011–2014, en um er að ræða framkvæmdaáætlun stjórnvalda. Samhliða er lögð fram fjarskiptaáætlun til tólf ára, 2011– 2022 og var fjallað um áætlanirnar saman í nefndinni. Grundvallarmarkmið fjarskiptaáætlunar verða hliðstæð markmiðum samgönguáætlunar, sem einnig er lögð fram tillaga um á þessu þingi. Þessi markmið eru aðgengileg og greið fjarskipti, hagkvæm og skilvirk fjarskipti, umhverfisvæn fjarskipti og örugg fjarskipti, en þau eiga að leggja grunn að framþróun íslensks samfélags.
    Fjarskipti hafa þróast ört síðasta áratuginn. Sú þróun varðar bæði þær tæknilegu framfarir sem gera fjarskiptum, tölvutækni og fjölmiðlun kleift að renna saman, og hið lagalega markaðsumhverfi fjarskipta sem tekur mið af samræmdum reglum Evrópusambandsins. Meiri hlutinn leggur áherslu á að regluverkið fylgi tækniþróuninni og sé í stöðugri endurskoðun.
    Nauðsynlegt er að tryggja örugg fjarskipti á öllu landinu. Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að huga sérstaklega að stöðu fjarskiptamála í dreifbýli landsins og telur brýnt að ljúka grunntengingum um land allt og tryggja íbúum landsins nauðsynlega fjarskiptaþjónustu. Öflug fjarskipti og góðar tengingar eru ekki síður mikilvæg fyrir íbúa og fyrirtæki í dreifbýli en þéttbýlinu og eru oft forsenda þess að búseta, nám og rekstur fyrirtækja geti gengið í dreifbýlinu. Þeir sem búa utan þéttbýlis þurfa oft að leita lengra eftir þjónustu en íbúar í þéttbýli og því mikilvægt að tryggja möguleika þeirra til að eiga samskipti við þjónustuaðila, stjórnvöld og stjórnsýslu með rafrænum og öruggum hætti. Í b-lið 1. hluta tillögunnar er gert ráð fyrir að mótaðar verði tillögur að úrbótum til að greiða fyrir endurnýjun og uppbyggingu ljósleiðarastofn- og aðgangsneta um allt land. Í tólf ára fjarskiptaáætlun eru svo lögð til skref í átt að því að tryggja öllum landsmönnum aðgang á háhraðafarneti eða tengingu sem skilar 30 Mb/s eða 100Mb/s. Meiri hlutinn bendir á að á ýmsum svæðum í dreifbýli þar sem markaður hefur reynst fyrir samkeppni er framboð og þjónusta langt frá því að vera nægilega góð og öflug. Mikilvægt er því að hafa í huga að uppbyggingar er ekki einungis þörf á svæðum sem eru skilgreind sem svæði „markaðsbrests“. Á ýmsum svæðum þar sem fyrirtæki á markaði hafa haslað sér völl og sjá um þjónustuna er ástandið engan veginn ásættanlegt. Í tillögunni er m.a. kveðið á um að stuðla að samnýtingu og samstarfi á ákveðnum sviðum fjarskiptamála. Meiri hlutinn telur slík ákvæði afar mikilvæg enda óásættanleg sóun í því fólgin að samnýta ekki svo dýrmæta samfélagsinnviði. Þeim sjónarmiðum var komið á framfæri við nefndina að samstarf af þessu tagi gengi í berhögg við ákvæði samkeppnislaga og þá stefnu samkeppnisyfirvalda að auka samkeppni. Meiri hlutinn bendir á að í athugasemdum við tillöguna segir m.a. að áætluninni „sé ætlað að fjalla um forsendur aðkomu stjórnvalda við að setja reglur um fjarskiptaþjónustu sem tryggja samkeppni á jafnræðisgrunni.“ Við framkvæmd tillögunnar verður farið að lögum og því ljóst að hún verði í fullu samræmi við ákvæði samkeppnislaga. Meiri hlutinn bendir jafnframt á að með áætluninni er stefnt að því að skjóta styrkari stoðum undir öflug fjarskipti og fjarskiptakerfi um allt land en nauðsynlegt er að tryggja víðtæka útbreiðslu fjarskiptaþjónustunnar. Í b-lið 1. hluta er þannig talað á um samstarfsvettvang hagsmunaaðila sem móti tillögur að úrbótum sem greiði fyrir endurnýjun og uppbyggingu ljósleiðarastofn- og aðgangsneta um landið. Fyrirtæki í fjarskiptum eru ekki einu hagsmunaaðilar í þessu máli heldur hlýtur hér jafnframt að vera átt við neytendur, opinbera aðila og ráðuneyti. Lög um fjarskipti, nr. 81/2003, styðja þessa túlkun enda er í 1. tölul. 4. mgr. 2. gr. þeirra kveðið á um að í fjarskiptaáætlun skuli leggja áherslu á að ná fram víðtæku samstarfi markaðarins, neytenda, opinberra stofnana og ráðuneyta um stefnumótun er varðar fjarskipti og skyld svið.
    Í f-lið 1. hluta tillögunnar er lagt til að settar verði fram myndrænar upplýsingar um fjarskiptastaði, fjarskiptakerfi og þjónustusvæði þeirra. Í k-lið 3. hluta er jafnframt lagt til að upplýsingum um staðsetningu radíósenda verði safnað og haldið til haga og þær gerðar aðgengilegar almenningi. Nefndinni bárust athugasemdir við þennan lið þar sem bent var á öryggissjónarmið og mikilvægi þess að koma í veg fyrir að valdið verði tjóni á innviðum fjarskipta. Meiri hlutinn telur mikilvægt að við framkvæmd þessa þáttar verði horft til öryggissjónarmiða, verndunar mikilvægra innviða og þjóðaröryggis. Nefndin ræddi og mikilvægi öflugs öryggiskerfis þannig að ef hættuástand skapast eða náttúruhamfarir eru yfirvofandi sé unnt að koma skjótum boðum til íbúa og gesta á viðkomandi svæði. Meiri hlutinn fagnar því að sett séu fram markmið um örugg fjarskipti í 3. hluta tillögunnar og áréttar hversu áríðandi er að til séu skýrar viðbragðsáætlanir og fjarskiptakerfi sem geti komið viðeigandi upplýsingum er varða almannaheill á framfæri með skjótt og örugglega.
    Nefndin hefur undanfarið fjallað um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjarskipti og lögum um Póst- og fjarskiptastofnun (þskj. 438, 362. mál) þar sem m.a. er lagt til að CERT-ÍS-öryggis- og viðbragðsteymi sé komið á fót. Er það í samræmi við l-lið 3. hluta tillögunnar þar sem lagt er til að slíku teymi sé komið á fót fyrir árslok 2011. Í nefndaráliti meiri hlutans um framangreint frumvarp kemur fram sú skoðun að eðlilegt sé að opinberar íslenskar stofnanir og deildir innan þeirra beri íslensk heiti. Meiri hlutinn leggur þar til að teyminu verði valið heitið netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar eða netöryggissveitin. Í samræmi við þá breytingartillögu leggur meiri hlutinn til breytingu á l-liðnum auk þess sem lagt er til að sveitin verði stofnuð hið fyrsta.
    Tillögunni fylgir ekki kostnaðaráætlun en í athugasemdum kemur fram að gert sé ráð fyrir því að fé til að framkvæma verkefni hennar verði sótt í fjarskiptasjóð sem hefur það að markmiði að stuðla að uppbyggingu á sviði fjarskiptamála á grundvelli fjarskiptaáætlunar. Sjóðurinn var stofnaður með lögum nr. 132/2005, um fjarskiptasjóð. Gildistími þeirra átti að vera til ársloka 2011 en með lögum nr. 179/2011 var hann framlengdur til loka árs 2016.
    Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Í stað orðanna „CERT-ÍS-öryggis- og viðbragðsteymi vegna ómissandi netþjónustu fyrir árslok 2011“ í l-lið 3. hluta tillögunnar komi: netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar til verndar ómissandi upplýsingainnviðum gegn netárásum fyrir árslok 2012.


Alþingi, 30. maí 2012.

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,
form., frsm.
Ólína Þorvarðardóttir.
Þuríður Backman.

Róbert Marshall.
Mörður Árnason.