Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 98. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 702  —  98. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit



um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu
EES-nefndarinnar nr. 55/2012 um breytingu á XII. viðauka
(Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bergþór Magnússon og Jóhönnu Bryndísi Bjarnadóttur frá utanríkisráðuneyti og Þórunni Valgerði Rún Benediktsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Þá hafa nefndinni borist gögn frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti vegna málsins.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 55/2012, frá 30. mars 2012, um breytingu á XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/7/ESB frá 16. febrúar 2011 um átak gegn greiðsludrætti í verslunarviðskiptum (endurútgefin). Sex mánaða frestur, samkvæmt EES-samningnum, til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 30. september 2012. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES- mála frá 1. október 2010.
    Markmið tilskipunarinnar er að draga úr greiðsludrætti í verslunarviðskiptum til að tryggja eðlilega starfsemi innri markaðarins og þar með auka samkeppnishæfni fyrirtækja, einkum lítilla og meðalstórra. Í umhverfi lágra eða engra vaxtagreiðslna vegna greiðsludráttar, sem getur þróast út í að vera skuldurum hagstæður, er nauðsynlegt að snúa þeirri þróun við.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og munu fyrirhuguð frumvörp atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra til breytinga á lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, innheimtulögum, nr. 95/2008, auk sérstakra laga til að innleiða að fullu ákvæði tilskipunarinnar, verða lögð fram á yfirstandandi þingi. Eftir framlagningu munu frumvörpin að líkindum koma til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd. Frestur til innleiðingar tilskipunarinnar er til 16. mars 2013.
    Hvorki er gert ráð fyrir að innleiðing reglugerðarinnar muni hafa í för með sér umtalsverðar fjárhagslegar né stjórnsýslulegar afleiðingar.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Árni Páll Árnason, framsögumaður nefndarinnar, Bjarni Benediktsson og Jón Bjarnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 27. nóvember 2012.



Árni Þór Sigurðsson,


form.


Ásmundur Einar Daðason.


Gunnar Bragi Sveinsson.


                                  

Helgi Hjörvar.


Mörður Árnason.


Ragnheiður E. Árnadóttir.