Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 279. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 705  —  279. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit



um tillögu til þingsályktunar um um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 167/2012 um breytingu á IX. viðauka
(Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.

    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bergþór Magnússon og Jóhönnu Bryndísi Bjarnadóttur frá utanríkisráðuneyti og Guðbjörgu Evu Baldursdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Þá hafa nefndinni borist gögn frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti vegna málsins.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 167/2012, frá 28. september 2012, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/73/ESB frá 24. nóvember 2010 um breytingu á tilskipunum 2003/71/EB um útboðs- og skráningarlýsingu sem birta skal við almennt útboð verðbréfa eða þegar þau eru tekin til skráningar og 2004/109/EB um samhæfingu krafna um gagnsæi í tengslum við upplýsingar um útgefendur verðbréfa sem eru skráð á skipulegan markað. Sex mánaða frestur, samkvæmt EES-samningnum, til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara er veittur til 28. mars 2012. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála frá 1. október 2010.
    Markmið tilskipunarinnar er að einfalda kröfur vegna almenns útboðs eða töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði sem taldar hafa verið óþarflega íþyngjandi fyrir smærri og meðalstór fyrirtæki.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og mun fyrirhugað frumvarp atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra til breytingar á lögum um verðbréfaviðskipti verða lagt fram á komandi þingi. Eftir framlagningu mun frumvarpið að líkindum koma til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd.
    Hvorki er gert ráð fyrir að innleiðing reglugerðarinnar muni hafa í för með sér verulegan fjárhagslegar né stjórnsýslulegar afleiðingar. Þá kemur fram í athugasemdum að ekki sé talið að aukinn kostnaður muni leggjast á einkaaðila vegna tilskipunarinnar, enda sé gildissvið hennar þrengt og að efnislegar breytingar miði að því að létta skyldum af fyrirtækjum.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Árni Páll Árnason, Bjarni Benediktsson og Jón Bjarnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 27. nóvember 2012.



Árni Þór Sigurðsson,


form.


Gunnar Bragi Sveinsson,           frsm.


Ásmundur Einar Daðason.



Helgi Hjörvar.


Mörður Árnason.


Ragnheiður E. Árnadóttir.