Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 290. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 737  —  290. mál.

2. umræða.


Nefndarálit



um frumvarp til laga um breytingu á lögum um gatnagerðargjald, nr. 153/2006,
með síðari breytingum (framlenging gjaldtökuheimildar).

Frá umhverfis- og samgöngunefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Elínu Vigdísi Hallvarðsdóttur frá innanríkisráðuneyti.
    Í frumvarpinu er lagt til að í stað dagsetningarinnar 31. desember 2012 í ákvæði til bráðabirgða í lögunum komi dagsetningin 31. desember 2015. Í umsögn fjárlagaskrifstofu fjármála- og efnahagsráðuneytisins segir að samkvæmt kostnaðarmati innanríkisráðuneytisins sé gert ráð fyrir að þau sveitarfélög sem geti nýtt sér heimild til álagningar og innheimtu svokallaðs B-gatnagerðargjalds samkvæmt bráðabirgðaákvæðinu til næstu áramóta verði af tæplega 214 millj. kr. tekjum komi ekki til framangreindrar lagabreytingar. Óskaði nefndin eftir minnisblaði ráðuneytisins um hvernig talan 214 millj. kr. í umsögn fjárlagaskrifstofunnar um frumvarpið hefði verið fundin. Minnisblað ráðuneytisins barst nefndinni 12. desember 2012.
    Samkvæmt minnisblaði ráðuneytisins er kostnaðarmat innanríkisráðuneytis gert skv. 129. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, en þar segir m.a. að ef fyrirsjáanlegt er að tillaga að lagafrumvarpi muni hafa fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög skuli fara fram sérstakt mat á áhrifum þeirra á fjárhag sveitarfélaga. Þegar mat á fjárhagslegum áhrifum tillögu að lagafrumvarpi liggur fyrir skuli það þá þegar lagt fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga til umsagnar. Eins og fram kemur í frumvarpinu kom tillaga þessi að lagafrumvarpi sem hér er til meðferðar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Var fjárhagsleg staða nefndra sveitarfélaga reiknuð þar og var mat ráðuneytisins skv. 129. gr. sveitarstjórnarlaga unnið á þeim grundvelli.
    Þá segir í minnisblaði ráðuneytisins að sveitarfélögin eigi eftir að leggja slitlag á götur fyrir um 822 millj. kr., þar sem ekki er slitlag fyrir. Heimildin til að innheimta gatnagerðargjöld upp í framkvæmdakostnað álagningarinnar renni hins vegar út um áramótin. Verði breytingin á lögunum ekki samþykkt, verði þessar framkvæmdir 214 millj. kr. dýrari fyrir sveitarfélögin en þær ella yrðu, færu þau í umræddar framkvæmdir.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 13. desember 2012.



Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,


form.


Ólína Þorvarðardóttir,


frsm.


Skúli Helgason.



Álfheiður Ingadóttir.


Birgir Ármannsson.


Birkir Jón Jónsson.



Atli Gíslason.