Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 448. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 770  —  448. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á búnaðarlögum og lögum um framleiðslu, verðlagningu
og sölu á búvörum (leiðbeiningarþjónusta, búvörusamningar o.fl.).

(Eftir 2. umræðu, 19. desember.)


I. KAFLI

Breyting á búnaðarlögum, nr. 70/1998, með síðari breytingum.

1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „eins búnaðarsambands eða fleiri“ í 4. tölul. kemur: Bændasamtaka Íslands.
     b.      11. tölul. orðast svo: Landsráðunautur eða fagstjóri er ráðunautur sem hefur yfirumsjón með leiðbeiningum á sínu sviði á landsvísu.
     c.      12. tölul. fellur brott.

2. gr.

    Í stað orðsins „leiðbeiningarmiðstöðvar“ í 8. gr. laganna kemur: leiðbeiningarmiðstöð.

3. gr.

    Við 17. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Allir bændur eiga rétt á leiðbeiningarþjónustu samkvæmt lögum þessum.

4. gr.

    18. gr. laganna ásamt fyrirsögn orðast svo:

Leiðbeiningar.

    Hjá leiðbeiningarmiðstöð starfa ráðunautar sem sinna faglegum leiðbeiningum fyrir bændur undir faglegri umsjón Bændasamtaka Íslands. Þeir annast eftirlit með búfjárrækt og kynbótum í þeim greinum sem lög þessi taka til. Þeir annast einnig eftirlit með jarðabótum og úttekt jarðabóta eftir því sem við á, sbr. 8. gr.
    Ráðunautar skulu hafa lokið háskólaprófi í búvísindum eða öðrum fræðigreinum eftir því sem við getur átt eða hafa menntun og starfsreynslu sem stjórn Bændasamtaka Íslands metur jafngilda.
    Landsráðunautar eða fagstjórar skulu starfa í einstökum búgreinum eða fagsviðum eftir því sem um er samið skv. 1. mgr. 3. gr. og fjárveiting heimilar. Þeir hafa yfirumsjón með leiðbeiningum, kynbótum og ræktun í viðkomandi búgrein.
    Landsráðunautar eða fagstjórar skulu hafa lokið háskólaprófi í búfræðum og hafa lokið sérnámi á sínu starfssviði eða hafa menntun og starfsreynslu sem stjórn Bændasamtaka Íslands metur jafngilda.

II. KAFLI

Breyting á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum,
nr. 99/1993, með síðari breytingum.

5. gr.

    Í stað ártalsins „2015“ í 1. mgr. 37. gr., 1. mgr. 41. gr. og fyrirsögn IX. kafla laganna kemur: 2017.

6. gr.

    Í stað ártalsins „2014“ í 3. mgr. 53. gr. og fyrirsögn X. kafla laganna kemur: 2016.

7. gr.

    Í stað ártalsins „2011“ í fyrirsögn XI. kafla laganna kemur: 2015.

8. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða T í lögunum:
     a.      Orðin „um tvö ár“ í 6. málsl. falla brott.
     b.      Í stað ártalsins „2015“ í 6. og 8. málsl. kemur: 2017.
     c.      Í stað ártalsins „2014“ í 7. málsl. kemur: 2016.

9. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða W í lögunum:
     a.      Í stað ártalsins „2014“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 2016.
     b.      Á eftir orðunum „öskufalls eða jökulflóða“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: vegna óvenjulegs veðurfars.
     c.      Í stað orðanna „enda sé a.m.k. annað þessara skilyrða einnig uppfyllt“ í 1. málsl. 1. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Með sama fororði er heimilt að greiða beingreiðslur til lögbýlis vegna ráðstafana sem ráðherra hefur fyrirskipað fyrir árslok 2012 til útrýmingar á sjúkdómi. Greiðslur samkvæmt þessu ákvæði eru þó aðeins heimilar ef a.m.k. annað eftirgreindra skilyrða er uppfyllt.

10. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða X í lögunum:
     a.      Í stað orðanna „og 2014“ í 1. mgr. og 1. málsl. 2. mgr. kemur: 2014, 2015 og 2016.
     b.      Á eftir orðunum „öskufalls eða jökulflóða“ í 1. mgr. kemur: vegna óvenjulegs veðurfars.
     c.      Í stað ártalanna „2007–2010“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 2008–2011.

11. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.