Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 468. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 811  —  468. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga



við frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum (tekjuöflunaraðgerðir, kjarasamningar, verðlagsbreytingar o.fl.).

Frá Lilju Mósesdóttur og Eygló Harðardóttur.


     1.      Á eftir a-lið 1. gr. komi nýr liður, svohljóðandi: Við 2. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Margnota bleiur og bleiufóður sem falla undir tollskrárnúmer 9619.0091.
     2.      A-liður 40. gr. orðist svo: A- og c-liður 1. gr. öðlast gildi 1. maí 2013 og taka til afhendingar og útleigu hótel- og gistiherbergja og annarrar gistiþjónustu frá og með þeim degi. B-liður 1. gr. öðlast þegar gildi.
     3.      Á eftir 40. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                      Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á 96. kafla tollskrár í viðauka I við tollalög, nr. 88/2005: Tollskrárnúmerið 9619.0090 skiptist upp og orðast svo:
                             
                        A     E
                        %     %
         –     Annars:
    9619.0091     –     –    Barnableiur og laust bleiufóður úr öðru en pappír eða vatti, margnota     15     0
    9619.0099     –     –     Annað     15     0