Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 495. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 862  —  495. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um almannatryggingar, lögum um málefni fatlaðs fólks
og lögum um málefni aldraðra.

(Eftir 2. umræðu, 21. desember.)


I. KAFLI
Breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007,
með síðari breytingum.

1. gr.

    Í stað ártalsins „2012“ í 14. tölul. ákvæðis til bráðabirgða í lögunum kemur: 2013.

II. KAFLI
Breyting á lögum um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992,
með síðari breytingum.

2. gr.

    Í stað orðanna „á árinu 2012“ í ákvæði til bráðabirgða V í lögunum kemur: á árinu 2013.

III. KAFLI
Breyting á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999,
með síðari breytingum.

3. gr.

     Í stað orðanna „1. janúar 2012 til og með 31. desember 2012“ í ákvæði til bráðabirgða VI í lögunum kemur: 1. janúar 2013 til og með 31. desember 2013.

4. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2013.