Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 231. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 889  —  231. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um
björgunarsjóð Evrópusambandsins.


     1.      Hver hefði hlutur Íslands verið í íslenskum krónum talið í 1.000 milljarða evra björgunarsjóði Evrópusambandsins væri Ísland orðið aðili að sambandinu?
    Hinn 8. október 2012 kynntu fjármálaráðherrar evruríkjanna stofnun Evrópska stöðugleikakerfisins (e. European Stability Mechanism, ESM), öðru nafni stöðugleikasjóður evruríkjanna.
    Hlutverk ESM er að stuðla að stöðugleika á evrusvæðinu með því að veita fjárhagsaðstoð til evruríkja sem eiga við efnahagsvanda að etja. Mun Evrópska stöðugleikakerfið taka við hlutverki Evrópska fjármálastöðugleikasjóðsins (e. European Financial Stability Facility, EFSF) og Evrópska viðbragðasjóðsins fyrir fjármálastöðugleika (e. European Financial Stabilisation Mechanism, EFSM).
    Einungis evruríkin 17 eru aðilar að ESM en ekki öll 27 aðildarríki Evrópusambandsins (ESB). Hlutur evruríkjanna í ESM er reiknaður út frá mannfjölda og landsframleiðslu viðkomandi ríkja á sama hátt og eignarhlutur þeirra í Evrópska seðlabankanum.
    Ef Íslendingar samþykkja í þjóðaratkvæðagreiðslu að ganga í Evrópusambandið og efnahagslegur stöðugleiki næst til langs tíma með þátttöku í gengissamstarfi Evrópu, ERM II, þannig að evran verði tekin upp sem gjaldmiðill má gera ráð fyrir að hlutur Íslands í ESM yrði um 0,1% af heild. Þar sem krónan hefði á þeim tíma verið aflögð hér á landi og evra tekin upp í staðinn, yrðu greiðslur Íslands í sjóðinn í evrum en ekki íslenskum krónum. Inngreitt eiginfjárframlag Íslands yrði þá 80 millj. evra, eða ríflega 13 milljarðar kr. á núverandi gengi. Hér væri um einskiptisframlag að ræða sem skráð yrði sem eign ríkissjóðs en ekki sem kostnaður í fjárlögum. Meginhluti framlagsins yrði hins vegar í formi ábyrgða á lánveitingum sem evruríkin ábyrgjast í hlutfalli við eignarhlut þeirra.

     2.      Hvernig er/verður framlag í björgunarsjóðinn reiknað út gangi Ísland í Evrópusambandið?
    Samkvæmt því sem að ofan greinir, að því gefnu að Ísland taki upp evru í framhaldi af aðild að Evrópusambandinu, má gera ráð fyrir að hlutur Íslands í Evrópska stöðugleikakerfinu yrði 0,1% af eigin fé þess.