Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1080, 141. löggjafarþing 460. mál: lyfjalög (lyfjablandað fóður, EES-reglur).
Lög nr. 20 11. mars 2013.
Leyfi til innflutnings eða framleiðslu lyfjablandaðs fóðurs handa dýrum hafa þeir einir sem til þess hafa hlotið leyfi Lyfjastofnunar. Leyfi skv. 1. málsl. veitir heimild til dreifingar lyfjablandaðs fóðurs. Í reglugerð sem ráðherra setur skal nánar kveðið á um skilyrði leyfisveitingar, notkun, eftirlit, afhendingu og dreifingu lyfjablandaðs fóðurs handa dýrum.
Þingskjal 1080, 141. löggjafarþing 460. mál: lyfjalög (lyfjablandað fóður, EES-reglur).
Lög nr. 20 11. mars 2013.
Lög um breytingu á lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum (lyfjablandað fóður).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- 11. tölul. 1. mgr. orðast svo: Umfjöllun um umsóknir og útgáfu lyfsöluleyfa skv. VII. kafla, innflutnings- og heildsöluleyfa skv. XII. kafla, framleiðsluleyfa skv. XIII. kafla og innflutnings- og framleiðsluleyfa fyrir lyfjablandað fóður skv. XVI. kafla.
- Við 10. mgr. bætist nýr töluliður er verður 10. tölul., svohljóðandi: innflytjendur og framleiðendur lyfjablandaðs fóðurs.
- Í stað „75.000 kr.“ í 1. tölul., „35.000 kr.“ í 2. tölul. og „7.500 kr.“ í 3. tölul. 11. mgr. kemur: 176.000 kr.; 82.000 kr.; og: 17.500 kr.
- Við 11. mgr. bætist nýr töluliður er verður 4. tölul., svohljóðandi: Vegna starfsemi innflytjenda og framleiðenda lyfjablandaðs fóðurs 0,3% af heildarfjárhæð lyfjainnkaupa til íblöndunar í fóður. Fjárhæð eftirlitsgjalds skal þó aldrei vera lægri en 82.000 kr. á ári.
- 1. málsl. 12. mgr. orðast svo: Fjárhæðir skv. 1.–4. tölul. 11. mgr. eru á desemberverðlagi 2012.
2. gr.
Á eftir XV. kafla laganna kemur nýr kafli, XVI. kafli, Innflutningur og framleiðsla lyfjablandaðs fóðurs, með einni nýrri grein, 47. gr., svohljóðandi, og breytist röð annarra kafla og greina samkvæmt því:Leyfi til innflutnings eða framleiðslu lyfjablandaðs fóðurs handa dýrum hafa þeir einir sem til þess hafa hlotið leyfi Lyfjastofnunar. Leyfi skv. 1. málsl. veitir heimild til dreifingar lyfjablandaðs fóðurs. Í reglugerð sem ráðherra setur skal nánar kveðið á um skilyrði leyfisveitingar, notkun, eftirlit, afhendingu og dreifingu lyfjablandaðs fóðurs handa dýrum.
3. gr.
Með lögum þessum er ráðherra veitt heimild til að innleiða ákvæði tilskipunar ráðsins 90/167/EBE frá 26. mars 1990 um skilyrði sem hafa áhrif á blöndun, markaðssetningu og notkun lyfjablandaðs fóðurs í bandalaginu sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 133/2007 frá 26. október 2007.4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 26. febrúar 2013.