Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 319. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1205  —  319. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu



um frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008 (landbúnaðarháskólar og samstarf opinberra háskóla).

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Hellen Gunnarsdóttur og Margréti Magnúsdóttur frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Þórð Kristinsson frá menntavísindasviði Háskóla Íslands, Elías Blöndal og Harald Benediktsson frá Bændasamtökunum og Söru Sigurðardóttur og Davíð Inga Magnússon frá Stúdentaráði Háskóla Íslands. Umsagnir bárust frá Bændasamtökum Íslands, menntavísindasviði Háskóla Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneyti og Stúdentaráði Háskóla Íslands.
    Meginmarkmið fyrirliggjandi frumvarps er að allir opinberir háskólar búi við sama lagaumhverfi. Með frumvarpinu eru því lagðar til breytingar á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008, sem fela í sér að starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands og Hólaskóla – Háskólans á Hólum verði felld undir lög um opinbera háskóla. Þá er lagt til að lög um búnaðarfræðslu, nr. 57/1999, falli brott, auk þess sem lagt er til að samstarf opinberra háskóla verði lögfest með svokölluðu háskólaneti. Við gerð frumvarpsins var leitað samráðs við helstu hagsmunaaðila auk þess sem frumvarpsdrögin voru sett í opið umsagnarferli og hagsmunaaðilum og áhugasömum gefinn kostur á að senda inn athugasemdir og umsagnir um málið sem hafðar voru til hliðsjónar við gerð endanlegs frumvarps.
    Meiri hlutinn telur efni og markmið fyrirliggjandi frumvarps jákvætt. Eðlilegt og brýnt er að allir opinberir háskólar verði jafnsettir gagnvart lögunum og búi við sama lagaumhverfi. Meiri hlutinn telur einnig mikilvægt að samstarf opinberra háskóla sem hófst árið 2011 verði formfest með stoð í lögum líkt og lagt er til í 6. gr. frumvarpsins.
    Í ljósi sjónarmiða sem komið hafa fram fyrir nefndinni telur meiri hlutinn þó vert að skýra nokkur atriði nánar.
    Fyrir nefndinni var gagnrýnt að ekki væri gert ráð fyrir formlegu utanumhaldi um búfræði og garðyrkjunám hjá Landbúnaðarháskóla Íslands. Meiri hlutinn áréttar að skólinn hefur samkvæmt lögum um háskóla, nr. 63/2006, og reglum um viðurkenningu háskóla, nr. 1067/ 2006, verið viðurkenndur á tveimur fræðasviðum og undirflokkum þess, þ.e. á sviði búvísinda og náttúruvísinda. Undirflokkar þess eru búfræði, hestafræði, náttúru- og umhverfisvísindi, skógfræði, landgræðslufræði og umhverfisskipulag. Nefndin hefur fengið upplýsingar um að innan þessara sviða hefur skólinn fullt frelsi til að þróa áfram námsskipulag og námsframboð.
    Jafnframt hefur komið fram gagnrýni á að starfsmenntun sé ekki skilgreind sem eitt af lykilverkefnum Landbúnaðarháskólans, m.a. í tengslum við búfræði og garðyrkjunám. Meiri hlutinn bendir á að samkvæmt ákvæði til bráðabirgða IV veitir ráðherra skólanum heimild til að reka starfsmenntun á framhaldsskólastigi og gera sérstakan samning um þann hluta starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands sem fellur undir lög um framhaldsskóla, nr. 92/2008, er gildi frá og með skólaárinu 2013–2014. Nefndin fékk þær upplýsingar hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti að í samræmi við lög hefði ráðuneytið þegar gengið frá samningi við skólann sem og aðra háskóla landsins um kennslu og rannsóknir þeirra árin 2012–2016. Í samningi Landbúnaðarháskóla Íslands segir m.a. í grein 2.1 um þjónustu og verkefni skólans að skólinn reki starfsmenntanám á framhaldsskólastigi á sviði garðyrkju og búfræði sem einnig nýtist sem aðfaranám inn á háskólabrautirnar. Þá segir þar að um námið skuli gert sérstakt samkomulag. Meiri hlutinn áréttar að með samningnum er starfsmenntanám skólans, t.d. í búfræði og garðyrkju, fært nær skipulagi framhaldsskóla, m.a. til að tryggja mat á námi og tengsl þess við hinn almenna framhaldsskóla. Þá hefur nefndin fengið upplýsingar um að vinna við útfærslu samningsákvæðis um starfsmenntanám skólans sé að hefjast og eigi að liggja fyrir um mitt ár. Telur meiri hlutinn eðlilegt að samráð verði haft við hagsmunaaðila við gerð samningsins.
    Nefndinni var jafnframt bent á mikilvægi þess að í Landbúnaðarháskólanum yrði áfram lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við atvinnulíf og áréttað var að í samningi skólans við ráðuneytið er í grein 2.2 fjallað um að Landbúnaðarháskóli Íslands vinni að vísindarannsóknum, þróunarstörfum, öflun og miðlun þekkingar á framangreindum fræðasviðum með áherslu á nýsköpun og öflug tengsl við atvinnulíf. Telur meiri hlutinn því ljóst að slíkar áherslur hafa verið lagðar til grundvallar við stefnu skólans næstu ár. Þá hefur nefndinni verið kynnt að rannsóknir skólans fari fram þvert á fræðasvið hans. Mikilvægt er einnig að góð tengsl séu bæði við ráðuneyti sem tengjast fræðasviðum skólans og atvinnulíf og hagsmunasamtök. Fyrir nefndinni kom fram að mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gert ráð fyrir að kalla til fulltrúa ráðuneyta sem tengjast fræðasviði skólans og hagsmunaaðila þegar fjallað er um stefnumótun, viðfangsefni og tengsl skólanna við atvinnulíf á samráðsfundum skólans og ráðuneytisins. Telur meiri hlutinn þetta fyrirkomulag á samráði tryggja víða aðkomu hagsmunaaðila að stefnumótun skólans.
    Í III. kafla laga um opinbera háskóla er fjallað um háskólafundi. Í 10. gr. laganna kemur fram hverjir eiga sæti á slíkum háskólafundum og í 2. mgr. er kveðið á um að einn fulltrúi nemenda á móti hverjum fimm fulltrúum annarra aðila innan háskólans eigi sæti á fundinum. Þá segir jafnframt að fulltrúar nemenda skuli kjörnir í sérstökum kosningum til tveggja ára í senn. Fram til ársins 2010 voru fulltrúar nemenda kjörnir til eins árs en því var breytt með lögum nr. 50/2010. Breytingin var gerð að frumkvæði Stúdentaráðs Háskóla Íslands og kemur fram í athugasemdum við ákvæðið að fulltrúar beggja fylkinga stúdenta, Röskvu og Vöku, hafi verið á einu máli um að óska eftir því að fulltrúar nemenda á háskólafundi verði kosnir til tveggja ára í senn, líkt og aðrir fulltrúar á háskólafundi. Nefndinni hafa nú verið kynnt andstæð sjónarmið Stúdentaráðs sem bent hefur á að í ljósi þess að kosið er í Stúdentaráð árlega er eðlilegt að samhliða fari fram kosning á háskólafundi. Fundirnir eru samráðsvettvangur háskólasamfélagsins þar sem fram fer umræða um þróun og eflingu háskólans, sbr. 9. gr. laganna og 1. gr. reglna um skipan og fundarsköp háskólaþings Háskóla Íslands, nr. 984/ 2008, og því eðlilegt að stúdentar geti haft bein áhrif á þátttöku á fundum og stefnumörkun þar. Þá eru fundir haldnir a.m.k. árlega og árleg kosning því til samræmis við það. Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að ákveðin festa gildi um lagaákvæði sem þessi en telur ljóst að framkvæmdin af breytingu ákvæðisins og kosningu fulltrúa nemenda á tveggja ára fresti hefur ekki reynst sem skyldi. Telur meiri hlutinn því rík rök hníga að því að breyta ákvæðinu til upprunalegs horfs þannig að fulltrúar nemenda á háskólafundi séu kosnir árlega og leggur til breytingu til samræmis.
    Meiri hlutinn leggur að auki til lagatæknilega breytingu á 5. gr. frumvarpsins til að auka skýrleika.
    Fyrir nefndinni var lögð áhersla á að gripið yrði til aðgerða til að tryggja viðveru menntafólks á Íslandi eftir útskrift og koma í veg fyrir að það flytti erlendis eftir nám og skapa hvata til að flytja aftur til Íslands eftir nám erlendis. Var lagt til við nefndina að allur beinn kostnaður sem hlytist af námi Íslendinga hérlendis og erlendis yrði gerður frádráttarbær frá tekjuskattsstofni, í tvö til þrjú framtalsár eftir námslok. Var þeim sjónarmiðum komið á framfæri að með því að gera vissa kostnaðarliði í námi stúdenta frádráttarbæra frá skattstofni mundi hið opinbera og skattkerfið stuðla að því að námsmenn skili sér á íslenskan vinnumarkað að námi loknu. Skattafslátturinn mundi laða sérfræðimenntaða Íslendinga aftur til landsins. Þá var nefndinni kynnt að svipað kerfi væri þegar til staðar t.d. í Bandaríkjunum, Ástralíu, Þýskalandi og Nýja-Sjálandi.
    Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að sérfræðingar sjái sér hag í því að búa á Íslandi en áréttar að margir þættir geta haft áhrif á val fólks á búsetu. Brýnt er að tryggja að hér á landi verði ekki atgervisflótti menntamanna og þeirra sem sinna nauðsynlegri þjónustu og leita verður leiða til að koma í veg fyrir slíkt. Benda verður á að sú hugmynd sem reifuð var við nefndina á ekki efnislega samleið með fyrirliggjandi frumvarpi eða markmiðum þess og því ekki unnt að gera breytingu á frumvarpinu til samræmis. Þá telur meiri hlutinn að hugmyndin hafi ekki hlotið nægilega umfjöllun eða greiningu auk þess sem áhrif hennar hafa ekki verið metin. Beinir meiri hlutinn því til mennta- og menningarmálaráðuneytis að leita samtals við fjármála- og efnahagsráðuneytið um þetta atriði og kanna nánar hvort um raunhæfan möguleika sé að ræða.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Á eftir 3. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                      Í stað orðanna „tveggja ára“ í 2. málsl. 2. mgr. 10. gr. laganna kemur: eins árs.
     2.      Í stað orðanna „24. gr.“ í 5. gr. komi: 2. mgr. 24. gr.

    Tryggvi Þór Herbertsson og Birgitta Jónsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 8. mars 2013.



Björgvin G. Sigurðsson,


form., frsm.


Skúli Helgason.


Þráinn Bertelsson.



Ólafur Þór Gunnarsson.


Kristján L. Möller.