Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1241, 141. löggjafarþing 619. mál: vörugjald og tollalög (sykur og sætuefni).
Lög nr. 22 14. mars 2013.

Lög um breytingu á lögum um vörugjald, nr. 97/1987, og tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum (lagfæringar á tilvísunum og tollskrárnúmerum vegna álagningar á sykur og sætuefni).


I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum.

1. gr.

     3. málsl. 1. mgr. 2. gr. laganna fellur brott.

2. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 5. mgr. 3. gr. laganna:
  1. Á eftir orðinu „innflytjanda“ í 1. málsl. kemur: eða framleiðanda.
  2. Á eftir orðinu „tollskýrslu“ í 1. málsl. kemur: eða vörugjaldsskýrslu.
  3. Á eftir orðinu „þyngd“ fyrra sinni í 1. málsl. kemur: sykurs.
  4. Á eftir orðinu „innflytjandi“ í 2., 3. og 4. málsl. kemur: eða framleiðandi.


3. gr.

     Í stað orðsins „ríkisskattstjóri“ í 2. tölul. 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: tollstjóri.

4. gr.

     Í stað orðanna „2. mgr. 8. gr.“ í 5. mgr. 7. gr. laganna kemur: 2. mgr. 14. gr.

5. gr.

     Í stað orðanna „ vaxtalögum, nr. 25/1987“ í 7. mgr. 9. gr. laganna kemur: lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001.

6. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á viðauka I við lögin:
  1. Tollskrárnúmerin 0402.1000, 0403.1019, 0403.1029, 0403.9014, 0403.9019 og 0409.0000 falla brott úr A-lið viðaukans.
  2. Við A-lið viðaukans bætist tollskrárnúmerið 0402.1090 sem skal bera vörugjaldið 15 kr./kg.
  3. Við A-lið viðaukans bætist tollskrárnúmerið 2106.9039, sem skal bera vörugjaldið 95 kr./kg.
  4. Í stað fjárhæðarinnar „210 kr./kg“ á tollskrárnúmerum 2106.9022 og 2106.9063 í A-lið viðaukans kemur: 168 kr./kg.
  5. Í stað tollskrárnúmersins „2934.9200“ í A-lið viðaukans kemur: 2934.9910.
  6. Tollskrárnúmerið 2932.1910 bætist við A-lið viðaukans og skal bera vörugjaldið 42.000 kr./kg.
  7. Tollskrárnúmerin 2203.0091, 2203.0092, 2203.0093, 2203.0094, 2203.0095, 2203.0096 og 2203.0099 falla brott úr B-lið viðaukans.


II. KAFLI
Breyting á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum.

7. gr.

     Í stað fjárhæðarinnar „44.000 kr.“ í b-lið 2. tölul. 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: 88.000 kr.

8. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á tollskrá í viðauka I við lögin:
A A1 E
% kr./kg %
a. Tollskrárnúmerið 0402.1000 fellur niður og í staðinn kemur:
– Í formi dufts, korns eða öðru föstu formi, með fituinnihaldi sem er ekki meira en 1,5% miðað við þyngd:
0402.1010 – – Án viðbætts sykurs eða annars sætiefnis 30 344
0402.1090 – – Annað 30 344
b. Tollskrárnúmerin 2202.1011 til og með tollskrárnúmerinu 2202.1029 ásamt fyrirsögnum falla brott og í staðinn kemur:
– – Gosdrykkir með viðbættum sykri eða sætiefnum:
2202.1011 – – – Í einnota stálumbúðum 20 0
2202.1012 – – – Í einnota álumbúðum 20 0
2202.1013 – – – Í einnota glerumbúðum stærri en 500 ml 20 0
2202.1014 – – – Í einnota glerumbúðum, 500 ml og minni 20 0
2202.1015 – – – Í einnota plastumbúðum, lituðum 20 0
2202.1016 – – – Í einnota plastumbúðum, ólituðum 20 0
2202.1019 – – – Annars 20 0
– – Gosdrykkir án viðbætts sykurs eða sætiefna:
2202.1031 – – – Í einnota stálumbúðum 20 0
2202.1032 – – – Í einnota álumbúðum 20 0
2202.1033 – – – Í einnota glerumbúðum stærri en 500 ml 20 0
2202.1034 – – – Í einnota glerumbúðum, 500 ml og minni 20 0
2202.1035 – – – Í einnota plastumbúðum, lituðum 20 0
2202.1036 – – – Í einnota plastumbúðum, ólituðum 20 0
2202.1039 – – – Annars 20 0
– – Sérstaklega tilreitt fyrir ungbörn og sjúka:
2202.1041 – – – Í pappaumbúðum 0 0
2202.1042 – – – Í einnota stálumbúðum 0 0
2202.1043 – – – Í einnota álumbúðum 0 0
2202.1044 – – – Í einnota glerumbúðum stærri en 500 ml 0 0
2202.1045 – – – Í einnota glerumbúðum, 500 ml og minni 0 0
2202.1046 – – – Í einnota plastumbúðum, lituðum 0 0
2202.1047 – – – Í einnota plastumbúðum, ólituðum 0 0
2202.1049 – – – Annars 0 0
c. Á 29. kafla verða eftirfarandi breytingar:
1. Tollskrárnúmerin 2940.0010 og 2940.0090 bætast við vöruliðinn 2940, svohljóðandi:
2940.0010 – Sætiefni til matvælaiðnaðar 0
2940.0090 – Annað 0
2. Tollskrárnúmerin 2932.1910 og 2932.1990 bætast við vöruliðinn 2932, svohljóðandi:
– – Annars:
2932.1910 – – – Sucralose og önnur sætiefni til matvælaiðnaðar 0
2932.1990 – – – Annars 0
3. Tollskrárnúmerið 2905.4900 fellur niður og í staðinn kemur:
– – Annars:
2905.4910 – – – Sætiefni til matvælaiðnaðar 0
2905.4990 – – – Annars 0


9. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi en koma til framkvæmda 1. mars 2013 nema b-, c-, e- og f-liðir 6. gr. sem koma þegar til framkvæmda.

Samþykkt á Alþingi 13. mars 2013.