Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 501. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1357  —  501. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga



við frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki,
og lögum nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.

Frá Lilju Mósesdóttur.


    Við efnismálsgrein 3. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Upplýsi lögaðili sem er eigandi hlutafjár eða stofnfjár umfram 1% ekki um raunverulega eigendur viðkomandi lögaðila telst hann ekki hæfur í skilningi VI. kafla til að fara með beinan eða óbeinan eignarhlut í fjármálafyrirtæki.