Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 618. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1376  —  618. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga



við frumvarp til laga um breytingu á lögum um stofnun opinbers hlutafélags
um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík, nr. 64/2010,
með síðari breytingum (opinber framkvæmd).

Frá Birni Val Gíslasyni.


     1.      Á eftir 3. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                 Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                 Ráðherra er heimilt að heimila Nýjum Landspítala ohf. að fara í forval vegna undirbúnings útboðs fullnaðarhönnunar.
     2.      5. gr. orðist svo:
                 Lög þessi öðlast gildi 1. september 2013. Þó öðlast 4. gr. þegar gildi.