Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 4. máls.
142. löggjafarþing 2013.
Þingskjal 29  —  4. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða,
lögum nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla,
og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands,
með síðari breytingum (stærðarmörk krókaaflamarksbáta,
strandveiðar, byggðakvóti, gjaldtökuheimildir, viðurlög).

(Eftir 2. umræðu, 21. júní.)


I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
1. gr.

    Við 4. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Þeir bátar einir geta öðlast veiðileyfi með krókaaflamarki sem eru styttri en 15 metrar að mestu lengd og minni en 30 brúttótonn. Óheimilt er að stækka bátana þannig að þeir verði stærri en þessu nemur.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. a laganna:
     a.      Í stað orðanna „ráðherra með reglugerð“ í 2. mgr. kemur: Fiskistofa með auglýsingu í Stjórnartíðindum.
     b.      Við 7. mgr. bætast þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Þar er m.a. heimilt að setja nánari skilyrði um eignarhald. Ef eigandi fiskiskips er lögaðili er heimilt að kveða á um að lögskráðir sjómenn á fiskiskipinu eigi tiltekna lágmarkseignarhlutdeild í lögaðilanum. Enginn eigenda lögaðila sem á bát með strandveiðileyfi getur átt aðild nema að einu strandveiðileyfi.

3. gr.

    Í stað orðanna „15 brúttótonnum“ í 6. mgr. 12. gr. laganna kemur: þeim stærðarmörkum sem kveðið er á um í 2. mgr. 4. gr.

4. gr.

    Í stað orðanna „15 brúttótonnum“ í 8. mgr. 15. gr. laganna kemur: þeim stærðarmörkum sem kveðið er á um í 2. mgr. 4. gr.

5. gr.

    Við 24. gr. laganna bætist nýr málsliður sem verður 2. málsl. og orðast svo: Ef veiðitímabili er lokið áður en ákvörðun Fiskistofu um sviptingu veiðileyfis tekur gildi, eða gildistíma sviptingar lýkur, skal leyfissvipting samkvæmt ákvörðuninni gilda við útgáfu næsta veiðileyfis.

6. gr.

    Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    a. (I.)
    Þeir bátar sem hafa veiðileyfi með krókaaflamarki og eru stærri en nemur hámarksstærð skv. 2. mgr. 4. gr. laganna, við gildistöku þessara laga, skulu halda leyfi sínu til veiða með krókaaflamarki. Verði bátar þessir stækkaðir eftir gildistöku laga þessara skal veiðileyfi þeirra með krókaaflamarki falla úr gildi frá og með næstu fiskveiðiáramótum.

    b. (II.)
    Á fiskveiðiárunum 2013/2014 til og með 2017/2018 hefur Byggðastofnun til ráðstöfunar aflaheimildir sem nema 1.800 þorskígildislestum til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Hafa skal samráð við viðkomandi sveitarstjórnir við ráðstöfunina. Aflaheimildir skulu vera í þorski, ýsu, steinbít og ufsa í hlutfalli við leyfðan heildarafla af þessum tegundum. Aflaheimildir þessar miðast við þorskígildi og skulu þær dregnar frá með sama hætti og greinir í 3. mgr. 8. gr. laganna, sbr. 5. mgr. sömu greinar. Ráðherra er heimilt, að fengnum tillögum Byggðastofnunar, að setja nánari ákvæði um framkvæmd þessa ákvæðis í reglugerð.

II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla,
með síðari breytingum.

7. gr.

    1. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:
    Ólögmætur er sá sjávarafli sem er umfram það aflamark sem veiðiskip hefur eða fenginn er án þess að tilskilin veiðileyfi skv. 2. mgr. 7. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands séu fyrir hendi, svo og afli sem 2. mgr. 7. gr. laga þessara tekur til.

III. KAFLI
Breyting á lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands,
með síðari breytingum.

8. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr. laganna:
     a.      Orðin „sem veitt hefur verið“ í 1. mgr. falla brott.
     b.      Við greinina bætist ný málsgrein sem verður 2. mgr., svohljóðandi:
                  Ef veiðitímabili er lokið áður en ákvörðun Fiskistofu um sviptingu veiðileyfis tekur gildi, eða gildistíma sviptingar lýkur, skal leyfissvipting samkvæmt ákvörðuninni gilda við útgáfu næsta veiðileyfis. Þar til réttaráhrifum leyfissviptingar lýkur er hvorki heimilt að flytja réttindi grásleppuveiðileyfis af bát né réttindi grásleppuveiðileyfis til viðkomandi báts.
     c.      Í stað tilvísunarinnar „1. og 2. mgr.“ í 3. mgr. kemur: 1.–3. mgr.

9. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.