Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 9. máls.
142. löggjafarþing 2013.
Þingskjal 37  —  9. mál.

Síðari umræða.


Breytingartillaga


við tillögu til þingsályktunar um aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, Árna Páli Árnasyni, Guðbjarti Hannessyni, Helga Hjörvar, Katrínu Júlíusdóttur, Kristjáni L. Möller, Oddnýju G. Harðardóttur, Valgerði Bjarnadóttur og Össuri Skarphéðinssyni.


    6. tölul. orðist svo: Settur verði á fót sérfræðingahópur sem undirbúi frumvarp til laga um afnám verðtryggingar á neytendalánum. Frumvarpið verði lagt fram á Alþingi í nóvember 2013.
     Ábyrgð: Forsætisráðherra.