Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 93. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 126  —  93. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breyting á lögum um dómstóla, nr. 15/1998,
með síðari breytingum (fjöldi dómara).

Frá allsherjar- og menntamálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Helgadóttur frá innanríkisráðuneytinu.
    Með frumvarpinu er lagt til að ákvæði í lögum nr. 147/2009 um að dómurum í héraði fjölgi úr 38 í 43 verði framlengt um eitt ár, til 1. janúar 2015. Með lögum nr. 147/2009 var dómurum í héraði fjölgað um fimm, úr 38 í 43, vegna mikils álags á dómstóla í kjölfar bankahrunsins. Með lögum nr. 138/2012 var heimildin til að fjöldi dómara væri 43 framlengd til 1. janúar 2014 þar sem fyrirséð þótti að áfram yrði mikið álag á dómstólunum sem bregðast þyrfti við.
    Það er ljóst að álag á dómstólunum er enn mikið. Ekki hefur verið leyst úr öllum ágreiningsmálum sem varða slitastjórnir bankanna, málum frá embætti sérstaks saksóknara og öðrum málum sem tengjast hruni viðskiptabankanna haustið 2008 til viðbótar við þann fjölda mála sem er á borði dómstóla. Einnig hefur orðið mikil aukning í kynferðisbrotamálum auk þess sem vinna er hafin við að koma á fót millidómstigi. Full þörf er að bregðast við þessu og halda sama fjölda dómara áfram um sinn, þ.e. að þeir séu 43.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Unnur Brá Konráðsdóttir og Jóhanna María Sigmundsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 29. október 2013.


Páll Valur Björnsson,

1. varaform.

Vilhjálmur Árnason,

frsm.

Líneik Anna Sævarsdóttir.


Elsa Lára Arnardóttir.

Guðbjartur Hannesson.

Helgi Hrafn Gunnarsson.


Svandís Svavarsdóttir.