Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 2. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 447  —  2. mál.

3. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um tekjuaðgerðir frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2014 (tekjuskattur einstaklinga, virðisaukaskattur, launatengd gjöld og skattar á fjármálafyrirtæki).

Frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


Skuldaúrvinnsla.
    Í ákvæði til bráðabirgða XXXVI í lögum um tekjuskatt er kveðið á um heimild lögaðila og þeirra manna sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi til þess að tekjufæra einungis 50% af fengnum eftirstöðvum eftirgjafar skulda vegna rekstrar- og greiðsluerfiðleika á tekjuárunum 2009, 2010, 2011, 2012 og 2013 allt að samtals 50 millj. kr., og 75% af eftirgjöf umfram samtals 50 millj. kr. Í ákvæði til bráðabirgða XXXVII í sömu lögum er mönnum utan atvinnurekstrar heimilað að telja ekki til tekna allt að samtals 15 millj. kr. hjá einstaklingi og samtals 30 millj. kr. hjá hjónum eða samsköttuðum, með tilteknu hámarki þó, vegna eftirgjafar veðskulda og skulda vegna bílasamninga vegna greiðsluerfiðleika á tekjuárunum 2009, 2010, 2011, 2012 og 2013.
    Fyrir 2. umræðu var farið fram á það við nefndina að hún legði til að gildistími ákvæða til bráðabirgða XXXVI og XXXVII í lögum um tekjuskatt yrði framlengdur um eitt ár. Var beiðnin studd þeim rökum að skuldaúrvinnslu heimila og fyrirtækja í kjölfar efnahagshrunsins væri ekki að fullu lokið hjá fjármálafyrirtækjum, lífeyrissjóðum og Íbúðalánasjóði.
    Fyrsti minni hluti fellst á að tilefni sé til að verða við beiðninni og leggur til breytingu því til samræmis.

Útreikningur vaxtabóta.
    Í 4. mgr. B-liðar 68. gr. laga um tekjuskatt er kveðið á um útreikning vaxtabóta. Er gert ráð fyrir að vaxtabætur ákvarðist þannig að frá vaxtagjöldum, eins og þau eru skilgreind í lögunum, er dregin fjárhæð sem svarar til 6% af tekjuskattsstofni viðkomandi. Í ákvæði til bráðabirgða XLI í sömu lögum er kveðið á um að framangreint viðmiðunarhlutfall hámarksvaxtagjalda af skuldum skuli vera 7% við ákvörðun vaxtabóta á árunum 2011, 2012 og 2013 vegna tekna, eigna og skulda á árunum 2010, 2011 og 2012.
    Fyrsti minni hluti leggur til breytingu á framangreindu ákvæði til bráðabirgða XLI þannig að vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta skerðist sem nemur 8,5% af tekjuskattsstofni í stað 8% á því tímabili sem ákvæðinu er ætlað að gilda.

Séreignarlífeyrissparnaður og starfstengdir eftirlaunasjóðir.
    Í 3. málsl. 4. tölul. og 5. tölul. A-liðar 30. gr. tekjuskattslaga er kveðið á um heimild til þess að draga frá skattskyldum tekjum einstaklinga utan atvinnurekstrar og manna sem vinna við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi allt að 4% af iðgjaldsstofni reglulegra iðgjalda séreignarlífeyrissparnaðar eða iðgjalda starfstengdra eftirlaunasjóða. Með lögum nr. 164/2011 var ákvæði til bráðabirgða XLIX bætt við lögin en þar er kveðið á um að þrátt fyrir framangreind ákvæði skuli heimilaður frádráttur, á árunum 2012–2014, vera allt að 2% af iðgjaldsstofninum. Þá er þar hnykkt á því að þeir sem annast iðgjaldaskil samkvæmt samningum um viðbótartryggingavernd og séreignarsparnað á tímabilinu 2012–2014 skuli þrátt fyrir ákvæði umræddra samninga draga að hámarki 2% af iðgjaldsstofni rétthafa nema hann óski sérstaklega eftir því að hlutfall iðgjalds verði hærra.
    Fyrsti minni hluti leggur til breytingu á ákvæði til bráðabirgða XLIX. Leggur hann til að gildistími þess verði styttur um 6 mánuði og þannig verði á ný heimilt að draga allt að 4% af iðgjaldastofni reglulegra iðgjalda séreignarlífeyrissparnaðar eða til starfstengdra eftirlaunasjóða eftir 1. júlí 2014 í stað 31. desember sama árs.

Framlag til Atvinnuleysistryggingasjóðs.
    Til þess að tryggja að mögulegt verði að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót í ár leggur 1. minni hluti til breytingu á 12. gr. frumvarpsins sem tryggir sjóðnum 240 millj. kr. af tekjum almenns tryggingagjalds vegna ársins 2014. Sérstaklega verður kveðið á um að ráðstöfunin gangi framar framlagi til Tryggingastofnunar ríkisins.

Skatthlutfall sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki.
    Með hliðsjón af markmiðum laga um sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki, að teknu tilliti til markmiða frumvarpsins, leggur 1. minni hluti til að skatthlutfall sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki verði hækkað í 0,376%.
    Fyrsti minni hluti leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Á eftir 2. gr. komi tvær nýjar greinar, svohljóðandi:
                  a.      (3. gr.)
                      Í stað orðanna „og 2013“ í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XXXVI í lögunum kemur: 2013 og 2014.
                  b.      (4. gr.)
                      Í stað orðanna „og 2013“ í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XXXVII í lögunum kemur: 2013 og 2014.
     2.      Við 4. gr. bætist nýr stafliður, c-liður, svohljóðandi: Í stað „8%“ í 3. mgr. kemur: 8,5%.
     3.      Á eftir 4. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                      Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða XLIX í lögunum:
                  a.      Í stað orðanna „á árunum 2012–2014“ í 1. málsl. kemur: á tímabilinu 2012–1. júlí 2014.
                  b.      Í stað „2012–2014“ í 2. málsl. kemur: 2012–1. júlí 2014.
     4.      Við 12. gr.
                  a.      1. málsl. orðist svo: Við lögin bætast þrjú ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi.
                  b.      Við bætist nýr stafliður, c-liður, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. 3. gr. skal Atvinnuleysistryggingasjóður fá til ráðstöfunar 240 millj. kr. af tekjum almenns tryggingagjalds vegna ársins 2013. Ráðstöfun skv. 1. málsl. gengur framar framlagi til Tryggingastofnunar ríkisins skv. 6. tölul. 2. mgr. 3. gr.
     5.      Í stað hlutfallstölunnar „0,151%“ í 17. gr. komi: 0,376%.
     6.      27. gr. orðist svo:
                      Lög þessi öðlast gildi og koma til framkvæmda sem hér segir:
                  a.      1., 2. og 14. gr. öðlast gildi 1. janúar 2014 og koma til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda á árinu 2015 vegna tekna ársins 2014 og við staðgreiðslu opinberra gjalda á því ári eftir því sem við á.
                  b.      3.–8., 10.–12., 15. og 23.–26. gr. öðlast þegar gildi.
                  c.      9., 13., 16., 17., 22. og 27.–29. gr. öðlast gildi 1. janúar 2014.
                  d.      18.–21. gr. öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda 2014 vegna tekjuársins 2013 og skulda í lok þess árs.

    Ragnheiður Ríkharðsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir nefndarálitið samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.

Alþingi, 19. desember 2013.



Frosti Sigurjónsson,


form., frsm.


Pétur H. Blöndal.


Willum Þór Þórsson.



Líneik Anna Sævarsdóttir.


Ragnheiður Ríkharðsdóttir.