Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 198. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 535  —  198. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði,
með síðari breytingum (ábyrgð félagsmanna í veiðifélögum).


Frá atvinnuveganefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ingimar Jóhannsson og Sigríði Norðmann frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og Óðin Sigþórsson frá Landssambandi veiðifélaga.
    Í frumvarpinu er lagt til að nýtt ákvæði bætist við lög um lax- og silungsveiði þar sem kveðið verði á um að félagsmenn í veiðifélagi skuli ekki bera persónulega ábyrgð á fjárskuldbindingum þess. Í ljósi þess að skylt er að eiga aðild að veiðifélagi er talið nauðsynlegt að kveða skýrt á um þetta í lögunum en Lagastofnun Háskóla Íslands vann álitsgerð þar sem fram kemur að félagsmenn kunni að bera fulla ótakmarkaða og solidaríska ábyrgð á fjárskuldbindingum veiðifélags samkvæmt gildandi lögum.
    Þá eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á lögunum hvað varðar tímamörk reglna sem veiðifélög eða veiðiréttarhafar, þar sem veiðifélög starfa ekki, setja um stangveiði á veiðisvæði sínu. Einnig eru lagðar til lagfæringar á 41. gr.
    Í athugasemdum við frumvarpið kemur fram að skv. 2. gr. þess verður ekki hægt að ganga að öðrum eignum félagsmanns til greiðslu á fjárskuldbindingum hans en eignarhlut hans í skráðum eignum veiðifélags. Bent var á við umfjöllun nefndarinnar um málið að skýrara væri í þessu sambandi að vísa til „arðskrárhlutar“ í stað „eignarhlutar“. Nefndin hnykkir hér með á þessu en þingnefndir geta ekki breytt eða lagt til breytingu á athugasemdum eða greinargerðum með þingmálum.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Björt Ólafsdóttir og Páll Jóhann Pálsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 21. janúar 2014.


Jón Gunnarsson,


form., frsm.


Lilja Rafney Magnúsdóttir.


Haraldur Benediktsson.



Ásmundur Friðriksson.


Kristján L. Möller,


með fyrirvara.


Þorsteinn Sæmundsson.



Þórunn Egilsdóttir.