Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 41. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 577  —  41. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um samstarf við Færeyjar og Grænland á sviði
menntunar heilbrigðisstarfsmanna, starfsmannaskipti
og veitingu heilbrigðisþjónustu á milli landanna.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Unni Brá Konráðsdóttur, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, og Þórð Þórarinsson, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins. Kostnaðarmat barst um málið frá velferðarráðuneyti.
    Með tillögunni er lagt til að Alþingi skori á ríkisstjórnina að efna til samstarfs við stjórnvöld Færeyja og Grænlands um menntun heilbrigðisstarfsmanna í löndunum og að tryggja möguleika á starfsmannaskiptum milli landanna. Jafnframt verði kannaðir möguleikar á því að þróa frekara samstarf á sviði geðlæknisþjónustu, bæði hvað varðar menntun starfsmanna og meðferð fyrir sjúklinga.
    Í kostnaðarmati velferðarráðuneytis kemur fram að samstarf við Færeyjar og Grænland á sviði heilbrigðisþjónustu á sér langa sögu og er þar gerð grein fyrir helstu samningum og samráði. Heilbrigðisráðherra hefur þegar tekið tillögurnar til umræðu á fundum ráðherranna í Þórshöfn og mótað tillögur um samninga og aukið samstarf. Í framhaldinu verður betur unnt að kostnaðarmeta tillögurnar.
    Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að tillagan um samstarf á sviði menntunar heilbrigðisstarfsmanna, starfsmannaskipti og veitingu heilbrigðisþjónustu væri til þess fallin að lækka kostnað hjá hverju landi fyrir sig.
    Tillagan byggist á ályktun nr. 1/2013 sem samþykkt var á ársfundi Vestnorræna ráðsins 20. ágúst 2013 í Narsarsuaq á Suður-Grænlandi en þar er áskorun þessa efnis beint til ríkisstjórnar Íslands og landsstjórna Færeyja og Grænlands.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Össur Skarphéðinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 21. janúar 2014.



Birgir Ármannsson,


form.


Ásmundur Einar Daðason,


frsm.


Frosti Sigurjónsson.



Guðlaugur Þór Þórðarson.


Óttarr Proppé.


Silja Dögg Gunnarsdóttir.



Vilhjálmur Bjarnason.


Bjarkey Gunnarsdóttir.