Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 168. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 684  —  168. mál.

3. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vátryggingastarfsemi og lögum
um miðlun vátrygginga (markaðssetning, stjórnarhættir og eftirlit).

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.


    Nefndin ákvað að taka frumvarpið til frekari umfjöllunar eftir að því hafði verið vísað til 3. umræðu og fékk á sinn fund Jónu Björk Guðnadóttur og Guðjón Rúnarsson frá Samtökum fjármálafyrirtækja, Sigurð Viðarsson og Valgeir Pálsson frá Tryggingamiðstöðinni, Valdimar Gunnar Hjartarson og Ragnheiði Morgan Sigurðardóttur frá Fjármálaeftirlitinu og Kjartan Gunnarsson og Sóleyju Ragnarsdóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
    Nefndinni bárust umsagnir frá Samtökum fjármálafyrirtækja og Fjármálaeftirlitinu.
    Fram komu athugasemdir við þá breytingu sem felst í 2. efnismgr. b-liðar 16. gr. frumvarpsins sem felur í sér að meiri hluti stjórnar skuli ávallt vera óháður félögum innan sömu félagasamstæðu, þar á meðal í líftryggingafélögum sem eru rekin sem dótturfélög skaðatryggingafélaga. Nefndin fór yfir málið með helstu hagsmunaaðilum. Bent hefur verið á að oft fari hagsmunir skaðatryggingafélags og líftryggingafélags saman og ákveðið hagræði geti skapast við að samnýta starfsmenn og stjórnarmenn. Í því samhengi vekur nefndin athygli á því að nauðsynlegt er að taka tillit til þess að eðlismunur er á rekstri skaða- og líftryggingafélaga þegar kemur að fjárfestingarstefnu og áhættustýringu sem er þýðingarmikið á jafn afmörkuðum markaði og við búum við hér á landi. Auk þess sem draga má ályktunarbærni stjórnar í efa þegar kemur að viðskiptum milli félaga þegar sama stjórn situr beggja vegna borðs. Það er mat nefndarinnar að ekki hafi komið fram ný sjónarmið á þessu stigi málsins sem réttlæti breytingar á umræddri grein. Nefndin telur vandkvæðum bundið að tryggja virkt stjórnendaeftirlit og takmarka hagsmunaárekstra með núverandi fyrirkomulagi. Áréttar nefndin mikilvægi þess að leitast sé við að koma í veg fyrir hættu á hagsmunaárekstrum sem krossstjórnarseta í tryggingafélögum getur skapað og tryggja gagnsæi og trúverðugleika gagnvart markaðnum og vátryggingartökum.
    Nefndin tekur undir þau sjónarmið sem fram hafa komið að skynsamlegt sé að miða við sama fjölda varamanna í stjórn vátryggingafélags og fjármálafyrirtækja sem kveðið er á um í 2. mgr. 51. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, þ.e. að kjósa skuli minnst tvo varamenn. Slík ráðstöfun kemur til móts við þau sjónarmið að erfitt sé að skipa jafnmarga varamenn og aðalmenn vegna aukinna krafna um hæfi stjórnarmanna í fjármálafyrirtækjum auk þess sem nútímafjarskiptatækni er þess eðlis að auðvelt er að láta stjórnarfundi fara fram án þess að allir aðilar séu samankomnir á einum stað og því sjaldgæft í framkvæmd að varamenn taki sæti.
    Í ljósi framangreinds leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi


BREYTINGU:

    
    Á undan a-lið 16. gr. komi nýr stafliður, svohljóðandi: 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Varamenn í stjórn vátryggingafélags skulu vera tveir hið minnsta.

Alþingi, 3. mars 2014.



Frosti Sigurjónsson,


form.


Vilhjálmur Bjarnason,


frsm.

Líneik Anna Sævarsdóttir.



Willum Þór Þórsson.


Pétur H. Blöndal.


Steingrímur J. Sigfússon.



Árni Páll Árnason.


Guðmundur Steingrímsson.