Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 456. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 969  —  456. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Svandísi Svavarsdóttur
um kostnað vegna ráðgjafarþjónustu.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hve mikill var kostnaður ráðuneytisins vegna ráðgjafarþjónustu frá 1. júlí 2013 til 15. mars 2014?

    Heildarkostnaður aðalskrifstofu ráðuneytisins (fjárlaganúmer 14-101) er 9.355.351 kr. á tímabilinu. Kostnaðurinn tekur til málaflokka sem heyra undir umhverfis- og auðlindaráðherra og skiptist með eftirfarandi hætti eftir þjónustutegundum:

Viðskipta- og hagfræðingar, löggiltir endurskoðendur og rekstrarráðgjafar 1.295.000 kr.
Lögfræðingar 1.055.400 kr.
Læknar, hjúkrunarfræðingar og sjúkraþjálfarar 79.190 kr.
Sálfræðingar, félagsfræðingar o.fl. 1.691.500 kr.
Þýðendur, túlkar 219.154 kr.
Önnur sérfræðiþjónusta 5.015.107 kr.
Samtals 9.355.351 kr.

    Athygli er vakin á því að kostnaður vegna ársins 2014 gæti tekið breytingum þar sem bókhald ársins hefur ekki verið yfirfarið eða endurskoðað.