Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 409. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 970  —  409. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Steingrími J. Sigfússyni
um uppsagnir starfsmanna ráðuneytisins og starfslið ráðherra.


     1.      Hve mörgum starfsmönnum ráðuneytisins hefur verið, eða verður, sagt upp störfum vegna sérstakrar 5% niðurskurðarkröfu sem lögð var á aðalskrifstofur ráðuneyta í fjárlögum? Svarið óskast sundurliðað eftir skrifstofum ráðuneytisins og starfsheitum og að greint sé frá í hve miklum mæli um uppsagnir eða lækkun starfshlutfalls er að ræða.
    Vegna sérstakrar 5% niðurskurðarkröfu á aðalskrifstofu ráðuneytisins var einum starfsmanni sagt upp störfum, um er að ræða starf gæða- og verkefnastjóra á skrifstofu yfirstjórnar. Þá var starfshlutfall sérfræðings á skrifstofu hafs, vatns og loftslags lækkað úr 100% í 50% og starfshlutfall móttökuritara á skrifstofu fjármála og rekstrar lækkað úr 100% í 50%.

     2.      Hve marga aðstoðarmenn, ráðgjafa eða starfsmenn í sérverkefni í fullu starfi eða hlutastarfi eða sem verktaka hefur ráðherra ráðið frá stjórnarskiptum?

    Frá stjórnarskiptum hefur verið ráðinn einn starfsmaður sem aðstoðarmaður ráðherra í fullt starf. Þá var gerður tímabundinn verksamningur í desember 2013 við ráðgjafa um kaup á sérfræðiþjónustu á sviði stjórnunarráðgjafar í tengslum við skoðun á möguleikum til hagræðingar hjá stofnunum ráðuneytisins. Ráðgjafinn vann með starfshópi innan ráðuneytisins að gagnaöflun og mótun tillagna en farið var af stað með þessa vinnu í framhaldi af tillögum hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar.