Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 562. máls.
1. Má vænta þess að ráðherra endurskoði afstöðu sína til niðurfellingar auðlegðarskatts í ljósi þess að hann færði fram efasemdir um lögmæti skattheimtunnar sem röksemd fyrir afnámi skattsins, en Hæstiréttur hefur nú úrskurðað skattinn lögmætan?
2. Ef ákveðið yrði að viðhalda í einhverjum mæli sérstakri skattheimtu á auðugustu einstaklinga og fjölskyldur landsins sem lið í tekjuöflun ríkisins og til að auðvelda niðurgreiðslu skulda ríkissjóðs, hvaða útfærslu slíkrar skattheimtu teldi ráðherra þá heppilegasta?
Skriflegt svar óskast.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Prentað upp.
Þingskjal 973 — 562. mál.
Skriflegt svar.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um auðlegðarskatt.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.