Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 597. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1140  —  597. mál.




Beiðni um skýrslu

frá félags- og húsnæðismálaráðherra um leiðir öryrkja til að
sækja réttindi sín hjá opinberri stjórnsýslu.

Frá Jóni Þór Ólafssyni, Ásmundi Friðrikssyni, Birgittu Jónsdóttir,
Bjarkeyju Gunnarsdóttur, Brynhildi Pétursdóttur, Elsu Láru Arnardóttur,
Helga Hrafni Gunnarssyni, Katrínu Júlíusdóttur,
Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, Oddnýju G. Harðardóttur,
Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur og Össuri Skarphéðinssyni.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að félags- og húsnæðismálaráðherra flytji Alþingi skýrslu þar sem fram komi tæmandi yfirlit yfir leiðir öryrkja til að sækja réttindi sín hjá opinberri stjórnsýslu og skyldur samfara því.

Greinargerð.

Tilefni og nauðsyn skýrslunnar.
    Í skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2012 kemur fram að viðhöfð nálgun stjórnsýslunnar við afgreiðslu mála sem borgararnir kæra sé „til þess fallin að skapa borgaranum þá ímynd af stjórnsýslunni að hún sé honum mótfallin og að hann eigi að etja við andstæðing sem hefur bæði opinbert fjármagn og mannafla á bak við sig til að standa í vegi fyrir því að hann nái fram réttindum sínum. Slíkt er vitaskuld ekki markmiðið með opinberri stjórnsýslu sem á að vera í þágu borgaranna.“
    Í ljósi þessa og með tilliti til upplýsinga-, leiðbeiningar- og frumkvæðisskyldu stjórnvalda er nauðsynlegt að til sé leiðarvísir sem veitir borgurum nákvæmar, aðgengilegar, skiljanlegar og tæmandi leiðbeiningar svo að þeir fái heildstæða yfirsýn yfir ferlið við að sækja rétt sinn innan stjórnsýslunnar.
    Almennir borgarar eru oft óvissir um hvernig þeir geti leitað réttar síns í stjórnsýslunni. Samkvæmt skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2012 á stjórnsýslan það til að koma í veg fyrir að borgararnir fái skorið úr um réttindi sín. Segja má að öryrkjar séu sá hópur borgara sem er í hvað veikastri stöðu til að standa vörð um réttindi sín. Skýrslan mun gegna hlutverki eins konar leiðarvísis fyrir öryrkja um feril þess að sækja réttindi sín innan opinberrar stjórnsýslu og öðlast skilning á réttindum og skyldum við meðferð kærumála á stjórnsýslustiginu. Skýrslan yrði ekki eingöngu gagnleg öryrkjum, heldur einnig stjórnsýslunni sjálfri sem hefur leiðbeiningar- og frumkvæðisskyldu gagnvart borgurunm. Umboðsmaður Alþingis hefur einnig vikið að nauðsyn þess að starfsfólk stjórnsýslunnar fái viðhlítandi og reglulega starfsmenntun um þær sérstöku reglur sem gilda um meðferð mála borgaranna þar (sbr. skýrslu umboðsmanns fyrir árið 2011, bls. 18–20).
    Með beiðni þessari yrði félags- og húsnæðismálaráðherra falið að taka þessa skýrslu saman fyrir 24. júlí 2014.

Helstu atriði sem koma þurfa fram í skýrslunni.
    Mikilvægt er að fram komi í skýrslunni nákvæmar, aðgengilegar, skiljanlegar og tæmandi leiðbeiningar yfir leiðir öryrkja til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur innan opinberrar stjórnsýslu – hjá ráðuneytum, stofnunum og öðrum aðilum hjá hinu opinbera – svo að öryrkjar fái heildstæða yfirsýn yfir réttindi sín og skyldur og ferlið við að sækja rétt sinn innan stjórnsýslunnar.
    Meðal þess sem koma þarf fram í skýrslunni er:
          hver veitir öryrkjum aðstoð við að sækja rétt sinn innan stjórnsýslunnar,
          hver úrskurðar um réttindi og skyldur öryrkja sem sækja rétt sinn innan stjórnsýslunnar og innan hvaða tímaramma,
          hvenær heimilt er að kæra úrskurði til æðra stjórnvalds og, eftir atvikum, vísa til dómstóla,
          hver skuli framfylgja úrskurðum sem felldir hafa verið,
          hvaða úrræði eru til staðar ef embætti stjórnsýslunnar hindra framgang úrlausnarinnar með aðgerðum eða aðgerðaleysi.