Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 600. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Prentað upp.

Þingskjal 1150  —  600. mál.
Leiðrétting.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um frestun verkfallsaðgerða Félags íslenskra
atvinnuflugmanna gegn Icelandair.


Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Björn Frey Björnsson og Sigurberg Björnsson frá innanríkisráðuneyti, Hafstein Pálsson, Jón Þór Þorvaldsson, Örnólf Jónsson og Sindra Sveinsson frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna, Svala Björgvinsson, Guðmund Pálsson, Björgólf Jóhannsson og Guðjón Arngrímsson frá Icelandair, Magnús Pétursson ríkissáttasemjara, Ástráð Haraldsson, Hrafnhildi Stefánsdóttur, Þorstein Víglundsson frá Samtökum atvinnulífsins og Magnús Norðdahl frá Alþýðusambandi Íslands.
    Með frumvarpinu er lagt til að verkfallsaðgerðum Félags íslenskra atvinnuflugmanna gegn Icelandair verði frestað. Lagt er til að aðilum verði gefið tækifæri til að semja sín á milli fyrir 15. júlí nk. en hafi aðilar á þeim tíma ekki komist að samkomulagi skuli gerðardómur ákveða kaup og kjör fyrir 15. september nk. Skal ákvörðun gerðardóms gilda frá gildistöku laganna og eins lengi og gerðardómur ákveður. Meiri hlutinn bendir á að við ákvörðun um gildistíma ákvörðunar gerðardóms beri dóminum að horfa til lengdar þeirra kjarasamninga sem samið hefur verið um á síðustu mánuðum. Á meðan gerðardómur er að störfum geta aðilar komist að samkomulagi um einstök ákvæði eða heildarsamning sín á milli og tekur þá gerðardómur ekki ákvörðun um þau atriði en dómurinn skal annars taka mið af því takist aðilum að koma sér saman um einhver atriði á starfstíma dómsins. Að öðru leyti skal gerðardómur við ákvörðun um laun aðila og önnur starfskjör hafa til hliðsjónar kjör annarra sem sambærilegir geta talist að menntun, störfum, vinnutíma og ábyrgð sem og kjarasamninga sem gerðir hafa verið nýlega og almenna þróun kjaramála.
    Meiri hlutinn tekur fram að það er grundvallarregla að aðilar kjarasamninga ljúki samningum sín í milli, en þegar brýna nauðsyn ber til getur komið til þess að íhlutun löggjafans sé réttlætanleg. Hafa verður þó í huga að löggjafanum eru ákveðin takmörk sett með 74. gr. stjórnarskrárinnar og 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem tryggja rétt launþega til aðildar að stéttarfélögum og hefur verkfallsrétturinn verið talinn falla þar undir. Íhlutun löggjafans er því aðeins réttlætanleg ef ríkir almannahagsmunir eru í húfi en þá þarf að gæta þess að ekki sé um of víðtæka eða langvarandi skerðingu á samningsrétti aðila að ræða.
    Líkt og fram kemur í athugasemdum við frumvarpið er um mikla efnahagslega hagsmuni að ræða fyrir þjóðarbúið. Ljóst er að verkfallsaðgerðir flugmanna munu hafa í för með sér víðtæka röskun á flugi til og frá landinu og geta valdið íslensku efnahagslífi verulegu tjóni á mikilvægum tíma fyrir störf fjölda einstaklinga og fyrirtækja í landinu. Greiðar flugsamgöngur til og frá landinu eru mikilvægar fjöldamörgum fyrirtækjum og atvinnugreinum í landinu sem munu verða fyrir áhrifum af verkfallsaðgerðum flugmanna. Ekki á það eingöngu við um ferðaþjónustuna og sjávarútveginn heldur er um mun víðtækari áhrif á atvinnulífið að ræða. Efnahagslegt tjón af verkfallsaðgerðunum getur því orðið verulegt. Það er mat meiri hlutans að þeir heildarhagsmunir sem í húfi eru séu það miklir að um ríka almannahagsmuni sé að ræða sem réttlæti inngrip löggjafans í þetta sinn á þann hátt sem lagt er til í frumvarpinu.
    Ekki virðist sem lausn finnist á kjaradeilu aðila í bráð. Kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Samtaka atvinnulífsins, sem fara með samningsumboð f.h. Icelandair, var vísað til ríkissáttasemjara 25. febrúar sl. en lítið hefur miðað í samningsátt og sáttatillögu ríkissáttasemjara hafnað. Á fundi nefndarinnar kom fram að deilan er í hnút og samningar ekki líklegir í fyrirsjáanlegri framtíð. Þá kom fram að um mjög rúman tíma sé að ræða í 1. mgr. 2. gr. frumvarpsins sem muni líklega ekki koma að notum. Þá verður að horfa til þess að óvissa um launakjör í langan tíma er ekki góð fyrir flugmenn og rétt að fá niðurstöðu í málið. Meiri hlutinn leggur því til að aðilar hafi til 1. júní til að komast að samkomulagi en gerðardómur taki til starfa eftir þann tíma og skili niðurstöðu sinni fyrir 1. júlí 2014.
    Fyrir nefndinni kom fram að tilgreining aðila í 1. gr. frumvarpsins væri ekki nægilega nákvæm. Samningsaðilar eru annars vegar Félag íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair ehf. Leggur meiri hlutinn til breytingu vegna þessa.
    Í ljósi framangreindra sjónarmiða leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



     1.      Í stað orðsins „Icelandair“ í 1. mgr. 1. gr. komi: Icelandair ehf.
     2.      Í stað „15. júlí 2014“ og „15. september“ í 1. mgr. 2. gr. komi: 1. júní 2014; og: 1. júlí.
     3.      Fyrirsögn frumvarpsins verði: Frumvarp til laga um frestun verkfallsaðgerða Félags íslenskra atvinnuflugmanna gegn Icelandair ehf.

Alþingi, 15. maí 2014.

Höskuldur Þórhallsson,
form., frsm.
Páll Jóhann Pálsson. Birgir Ármannsson.
Guðlaugur Þór Þórðarson. Vilhjálmur Árnason.