Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1206, 143. löggjafarþing 315. mál: gjaldskrárlækkanir o.fl. (breyting ýmissa laga).
Lög nr. 46 26. maí 2014.

Lög um gjaldskrárlækkanir o.fl.


I. KAFLI
Breyting á lögum um olíugjald og kílómetragjald, nr. 87/2004, með síðari breytingum.

1. gr.

     Í stað fjárhæðarinnar „56,55 kr.“ í 4. mgr. 1. gr. laganna kemur: 56 kr.

2. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:
  1. 4. mgr. orðast svo:
  2.      Kílómetragjald af gjaldskyldum bifreiðum skv. 1. tölul. 1. mgr., sbr. 3. tölul., skal vera sem hér segir:
    Leyfð heildarþyngd Kílómetra- Leyfð heildarþyngd Kílómetra-
    ökutækis, kg gjald, kr. ökutækis, kg gjald, kr.
    10.000–11.000 0,28 21.001–22.000 6,91
    11.001–12.000 0,89 22.001–23.000 7,52
    12.001–13.000 1,49 23.001–24.000 8,12
    13.001–14.000 2,10 24.001–25.000 8,71
    14.001–15.000 2,70 25.001–26.000 9,31
    15.001–16.000 3,31 26.001–27.000 9,92
    16.001–17.000 3,90 27.001–28.000 10,53
    17.001–18.000 4,50 28.001–29.000 11,13
    18.001–19.000 5,10 29.001–30.000 11,73
    19.001–20.000 5,70 30.001–31.000 12,33
    20.001–21.000 6,32 31.001 og yfir 12,93

  3. 6. mgr. orðast svo:
  4.      Sérstakt kílómetragjald af gjaldskyldum ökutækjum skv. 2. mgr. skal vera sem hér segir:
    Leyfð heildarþyngd Kílómetra- Leyfð heildarþyngd Kílómetra-
    ökutækis, kg gjald, kr. ökutækis, kg gjald, kr.
    5.000–6.000 8,48 18.001–19.000 22,38
    6.001–7.000 9,17 19.001–20.000 23,39
    7.001–8.000 9,87 20.001–21.000 24,42
    8.001–9.000 10,58 21.001–22.000 25,43
    9.001–10.000 11,26 22.001–23.000 26,44
    10.001–11.000 12,26 23.001–24.000 27,45
    11.001–12.000 13,58 24.001–25.000 28,47
    12.001–13.000 14,87 25.001–26.000 29,48
    13.001–14.000 16,17 26.001–27.000 30,49
    14.001–15.000 17,47 27.001–28.000 31,51
    15.001–16.000 18,77 28.001–29.000 32,53
    16.001–17.000 20,06 29.001–30.000 33,54
    17.001–18.000 21,38 30.001–31.000 34,54
    31.001 og yfir 35,57



3. gr.

     Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     Ef ekki er komið með ökutæki til álestrar á fyrsta álestrartímabili ársins 2014, sem stendur frá 1. til 15. júní 2014, sbr. 1. mgr. 14. gr., skal reikna út meðaltal ekinna kílómetra á dag á tímabilinu milli álestra. Þá skal hið nýja gjald innheimt eftir meðaltalsakstri eftir 1. júní 2014.
     Við ákvörðun kílómetragjalds og sérstaks kílómetragjalds skv. 13. gr. á álestrartímabilinu 1. júní til 15. júní 2014 skal ríkisskattstjóri deila eknum kílómetrum frá fyrri álestri með dagafjölda sama tímabils og reikna kílómetragjald af hverjum eknum kílómetra miðað við fjölda gjaldskyldra daga fyrir 1. júní 2014 og fjölda gjaldskyldra daga eftir 1. júní 2014.

II. KAFLI
Breyting á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993, með síðari breytingum.

4. gr.

     Í stað fjárhæðarinnar „25,20 kr.“ í 14. gr. laganna kemur: 24,96 kr.

5. gr.

     Í stað fjárhæðanna „40,70 kr.“ og „43,15 kr.“ í 2. málsl. 1. mgr. 15. gr. laganna kemur: 40,30 kr.; og: 42,73 kr.

III. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009, með síðari breytingum.

6. gr.

     Í stað fjárhæðanna „5,90 kr.“, „5,15 kr.“, „7,30 kr.“ og „6,50 kr.“ í 2. mgr. 1. gr. laganna kemur: 5,84 kr.; 5,10 kr.; 7,23 kr.; og: 6,44 kr.

7. gr.

     Í stað fjárhæðarinnar „0,130 kr.“ í 2. mgr. 5. gr. laganna kemur: 0,129 kr.

IV. KAFLI
Breyting á lögum um gjald af áfengi og tóbaki, nr. 96/1995, með síðari breytingum.

8. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 3. gr. laganna:
  1. Í stað fjárhæðarinnar „94,05 kr.“ í 1. tölul. kemur: 93,14 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „84,60 kr.“ í 2. tölul. kemur: 83,78 kr.
  3. Í stað fjárhæðarinnar „115,20 kr.“ í 3. tölul. kemur: 114,08 kr.


9. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 9. gr. laganna:
  1. Í stað fjárhæðarinnar „453,00 kr.“ í 1. tölul. kemur: 448,60 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „14,85 kr.“ í 2. tölul. kemur: 14,71 kr.
  3. Í stað fjárhæðarinnar „16,20 kr.“ í 3. tölul. kemur: 16,04 kr.


10. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 10. gr. laganna:
  1. Í stað fjárhæðarinnar „569,05 kr.“ í 1. tölul. kemur: 563,53 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „28,45 kr.“ í 2. tölul. kemur: 28,17 kr.


V. KAFLI
Breyting á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013.

11. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:
  1. Í stað orðsins „gjalddaga“ í 1. og 2. mgr. kemur: eindaga.
  2. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Beri eindaga upp á helgidag eða almennan frídag færist eindagi á næsta virkan dag á eftir.


12. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. júní 2014.

Samþykkt á Alþingi 16. maí 2014.