Fundargerð 144. þingi, 2. fundi, boðaður 2014-09-10 19:40, stóð 19:39:50 til 22:06:27 gert 11 8:14
Alþingishúsið [prenta uppsett í dálka] [<-][->]

2. FUNDUR

miðvikudaginn 10. sept.,

kl. 7.40 síðdegis.

Dagskrá:

Fjarvistarleyfi:


Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Framsóknarflokkur, Samfylkingin, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Sjálfstæðisflokkur, Björt framtíð, Píratar.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Vigdís Hauksdóttir, 2. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvesturkjördæmis, Katrín Júlíusdóttir, 11. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri og Kristján L. Möller, 7. þm. Norðausturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð voru Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Steinunn Þóra Árnadóttir, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðausturkjördæmis.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 3. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð og Guðlaugur Þór Þórðarsson, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Fyrir Bjarta framtíð töluðu í fyrstu umferð Guðmundur Steingrímsson, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri Björt Ólafsdóttir, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Brynhildur S. Björnsdóttir, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fyrir Pírata töluðu Jón Þór Ólafsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu umferð, Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri umferð og Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í þriðju.

[19:39]

Horfa

[22:05]

Útbýting þingskjala:

Þingmálaskrá:

Fundi slitið kl. 22:06.

---------------