Ferill 81. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 81  —  81. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um lagabreytingar vegna fullgildingar
sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Frá Steinunni Þóru Árnadóttur.


     1.      Hvaða lögum og reglugerðum hefur verið breytt svo að fullgilda megi sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks eftir að „tafla yfir lög og reglugerðir sem varða samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks“ var gefin út í apríl 2013?
     2.      Er unnið að undirbúningi annarra breytinga á regluverki svo fullgilda megi sáttmálann?
     3.      Hvenær er fyrirhugað að fullgilda sáttmálann?


Skriflegt svar óskast.