Ferill 180. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 189  —  180. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um skipan í embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.


Frá Árna Páli Árnasyni.



    Hver voru rökin fyrir því að beita ákvæði til bráðabirgða I í lögum nr. 51/2014 við skipan í embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu? Af hverju var embættið ekki auglýst laust til umsóknar þar sem ekki var um nýtt embætti að ræða?