Ferill 93. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 195  —  93. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Jakobsdóttur
um ráðningar starfsmanna atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða aðstoðarmenn, ráðgjafar eða starfsmenn í sérverkefnum, í fullu starfi eða hlutastarfi, hafa verið ráðnir til starfa í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra frá og með 1. júní 2013 án þess að störfin væru auglýst? Óskað er eftir upplýsingum um nöfn starfsmanna, verkefni sem þeir eru ráðnir til að sinna og lengd ráðningartíma.

    Helga Sigurrós Valgeirsdóttir var ráðin aðstoðarmaður ráðherra frá 16. júní 2013 og Benedikt Sigurðsson 18. ágúst 2013. Ráðningartími aðstoðarmanna ráðherra er jafnlangur þeim tíma sem ráðherra situr nema annað sé ákveðið.
    Arnar Freyr Einarsson hagfræðingur var ráðinn frá 1. febrúar 2014 til 31. desember 2014 til að vinna að uppfærslu á hagtölum fyrir mjólkurframleiðslu.
    Guðrún Gunnarsdóttir, nemi í viðskiptafræðum, var ráðin 1. júní 2014 til 31. ágúst 2014 vegna sumarafleysinga í bókhaldi. Frá 1. september til 31. desember 2014 sinnir hún 40% starfi við bókhald og fjármál.
    Elín Guðmunda Einarsdóttir laganemi var ráðin frá 7. júní 2014 til 31. ágúst 2014 til sumarafleysinga í móttöku ráðuneytisins og til aðstoðar við ýmis lagaleg verkefni. Fram til 30. október 2014 sinnir hún sömu verkefnum og fyrr í tímavinnu.