Ferill 91. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 206  —  91. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Jakobsdóttur
um ráðningar starfsmanna velferðarráðuneytisins.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvaða aðstoðarmenn, ráðgjafar eða starfsmenn í sérverkefnum, í fullu starfi eða hlutastarfi, hafa verið ráðnir til starfa í velferðarráðuneytinu á vegum félags- og húsnæðismálaráðherra frá og með 1. júní 2013 án þess að störfin væru auglýst? Óskað er eftir upplýsingum um nöfn starfsmanna, verkefni sem þeir eru ráðnir til að sinna og lengd ráðningartíma.

    Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi töflu.



Ráðningar starfsmanna í velferðarráðuneytinu á vegum félags- og húsnæðismálaráðherra.

Nafn Verkefni Upphaf ráðningar Lok ráðningar Athugasemdir
Guðríður Bolladóttir
Jafnréttismál, barnaverndarmál og málefni fatlaðs fólks 16. maí 2014 15. maí 2015 Afleysingar vegna námsleyfis
Gunnhildur Gunnarsdóttir
Undirbúningur nýrrar löggjafar um húsnæðismál 15. ágúst 2014 31. desember 2014 Starfsmaður lánaður frá Íbúðalánasjóði
Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir
Málefni innflytjenda og verkefni tengd móttöku flóttamanna 13. ágúst 2014 12. ágúst 2015 Afleysingar vegna fæðingarorlofs
Hrafnkell Hjörleifsson
Starfsmaður samvinnuhóps um framtíðarskipan húsnæðismála 1. september 2013 16. maí 2014 30% starf með námi
Jóhann Þorvarðarson
Vinna fyrir kærunefnd greiðsluaðlögunarmála 1. september 2014 31. desember 2014 30% starf, nemi sem var í sumarafleysingum
Matthías Páll Imsland
Aðstoðarmaður ráðherra júní 2013 Lok kjörtímabils
Siv Friðleifsdóttir
Verkefni sem tengjast samstarfsráðherra Norðurlanda og velferðarvaktin 1. nóvember 2013 31. desember 2014