Ferill 85. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 238  —  85. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Jakobsdóttur
um ráðningar starfsmanna innanríkisráðuneytisins.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða aðstoðarmenn, ráðgjafar eða starfsmenn í sérverkefnum, í fullu starfi eða hlutastarfi, hafa verið ráðnir til starfa í innanríkisráðuneytinu á vegum dómsmálaráðherra frá og með 26. ágúst 2014 án þess að störfin væru auglýst? Óskað er eftir upplýsingum um nöfn starfsmanna, verkefni sem þeir eru ráðnir til að sinna og lengd ráðningartíma.

    Enginn aðstoðarmaður, ráðgjafi eða starfsmenn í sérverkefnum hafa verið ráðnir til starfa í verkefnum er heyra undir dómsmálaráðherra.