Ferill 88. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 285  —  88. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Jakobsdóttur
um ráðningar starfsmanna ráðuneytisins.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða aðstoðarmenn, ráðgjafar eða starfsmenn í sérverkefnum, í fullu starfi eða hlutastarfi, hafa verið ráðnir til starfa í utanríkisráðuneytinu frá og með 1. júní 2013 án þess að störfin væru auglýst? Óskað er eftir upplýsingum um nöfn starfsmanna, verkefni sem þeir eru ráðnir til að sinna og lengd ráðningartíma.

    Utanríkisráðuneytið hefur ekki ráðið ráðgjafa eða starfsmenn í sérverkefni, hvorki í fullt starf né hlutastarf, frá 1. júní 2013. Ráðherra réð Margréti Gísladóttur sem aðstoðarmann sinn frá 1. júní 2013 og Sunnu Gunnars Marteinsdóttur frá 5. september s.á., sbr. 22. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands. Margrét gegnir nú starfsskyldum sínum í forsætisráðuneyti. Aðstoðarmenn ráðherra eru í formlegu ráðningarsambandi við forsætisráðuneyti óháð því hvar þeir gegna starfsskyldum sínum.