Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 378  —  309. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um vinnustaðanámssjóð.

Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.


     1.      Hve miklu fé hefur verið úthlutað úr vinnustaðanámssjóði frá stofnun hans og hversu margir hafa fengið úthlutað úr honum, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hyggst ráðherra gera breytingartillögu við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2015 þess efnis að fjármunir verði lagðir til vinnustaðanámssjóðs?


Skriflegt svar óskast.