Ferill 328. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 400  —  328. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um verktakakostnað embættis sérstaks saksóknara.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.


     1.      Hver hefur kostnaður embættis sérstaks saksóknara verið vegna aðkeyptrar ráðgjafar og þjónustu verktaka til 1. október 2014?
     2.      Til hvaða verkefna var þjónustan keypt, af hverjum og hve háar voru greiðslurnar til hvers og eins?
    Svar óskast sundurliðað eftir árum.


Skriflegt svar óskast.