Ferill 441. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 673 — 441. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um umhverfismat vegna áforma um vegagerð á Sprengisandi.
Frá Svandísi Svavarsdóttur.
1. Hver tók ákvörðun um að hefja mat á umhverfisáhrifum nýrrar Sprengisandsleiðar, F26?
2. Hver stendur straum af kostnaði vegna mats á umhverfisáhrifum áformaðrar vegagerðar?
3. Hversu mikið er áætlað að umhverfismatið kosti?
Skriflegt svar óskast.