Ferill 459. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 736  —  459. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð og lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða
(samspil örorkugreiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða).


Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, Björt Ólafsdóttur,
Guðbjarti Hannessyni og Steinunni Þóru Árnadóttur.


     1.      1. gr. orðist svo:
                  Í stað dagsetningarinnar „31. desember 2013“ í 16. tölul. ákvæðis til bráðabirgða í lögunum kemur: 31. desember 2015.
     2.      2. gr. orðist svo:
                  Í stað dagsetningarinnar „31. desember 2013“ í 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögunum kemur: 31. desember 2015.
     3.      3. gr. orðist svo:
                  Í stað dagsetningarinnar „31. desember 2013“ í ákvæði til bráðabirgða XI í lögunum kemur: 31. desember 2015.