Ferill 3. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 745  —  3. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2015.

Frá Pétri H. Blöndal.


    Í stað fjárhæðarinnar „810 kr.“ í 10. gr. komi: 824 kr.

Greinargerð.

    Við 2. umræðu um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2015 var samþykkt breytingartillaga þar sem framlög til trúfélaga voru aukin um 50 millj. kr. Lagt er til að föst krónutala sóknargjalda hækki í 824 kr. á mánuði árið 2015 í stað 810 kr. eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu.