Ferill 595. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1035  —  595. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um augnlæknaþjónustu.

Frá Kristjáni L. Möller.


     1.      Er ráðherra kunnugt um hvers vegna augnlæknaþjónustu á Austurlandi með komu sérfræðinga hefur verið hætt?
     2.      Er eitthvað í starfsemi Heilbrigðisstofnunar Austurlands sem skýrir þessa breytingu?