Ferill 596. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1036 — 596. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um þjónustu við barnshafandi konur.
Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.
1. Hvaða þjónusta er veitt barnshafandi konum á heilbrigðisstofnunum? Svar óskast sundurliðað eftir heilbrigðisstofnunum og starfsstöðvum þeirra.
2. Hver er greiðsluþátttaka ríkisins vegna ferða- og gistikostnaðar ef barnshafandi konur þurfa að sækja þjónustu utan starfsstöðvar heilbrigðisstofnunar í því heilbrigðisumdæmi þar sem þær búa?
Skriflegt svar óskast.