Ferill 632. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1241  —  632. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sam­eigin­legu
EES-nefndarinnar nr. 29/2015 um breytingu á XVII. viðauka
(Hugverkaréttindi) við EES-samninginn.


Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Önnu Katrínu Vilhjálmsdóttur og Bryndísi Kjartansdóttur frá utanríkisráðuneyti og Agnesi Guðjónsdóttur frá mennta- og menningarmálaráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sam­eigin­legu EES- nefndarinnar nr. 29/2015, frá 25. febrúar 2015, um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2012/28/ESB frá 25. október 2012 um tiltekna leyfilega notkun á munaðarlausum verkum. Sex mánaða frestur samkvæmt EES-samningnum til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 25. ágúst 2015. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
    Tilskipunin kveður á um tiltekna leyfilega notkun á verkum sem njóta höfundaréttar þegar höfundur þeirra er óþekktur eða ekki er vitað hvar hann heldur sig og því ekki unnt að leita heimildar til nota verkanna. Markmið hennar er að gera menningarstofnunum Evrópuríkja kleift að gera stafræn eintök af munaðarlausum verkum til að tryggja að ekki sé gloppa í menningararfi Evrópu í stafrænu formi. Tilskipunin hefur að geyma skilgreiningu á því hvað teljist munaðarlaus verk og hvernig skuli staðið að ítarlegri leit að rétthöfum áður en hægt er að ákvarða verk munaðarlaus. Þá er kveðið á um gagnkvæma viðurkenningu milli ríkja á slíkri ákvörðun og það hvernig rétthafar geti bundið enda á þá skilgreiningu. Tilskipunin tekur til almenningsbókasafna, menntastofnana, safna, skjalasafna, varðveislustofnana kvikmynda og hljóðrita, ásamt útvarpsstöðvum sem veita opinbera þjónustu. Not umræddra verka eru einungis heimil ef þau eru vegna markmiða viðkomandi stofnunar sem varða hlutverk hennar í almannaþágu.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972, og hefur mennta- og menningarmálaráðherra þegar lagt fram slíkt breytingalagafrumvarp, sbr. 701. mál. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram almenn ánægja með tillöguna enda væri þörf á slíkum heimildum til að nýta munaðarlaus höfundarverk í almannaþágu.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Silja Dögg Gunnarsdóttir og Össur Skarphéðinsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.


Alþingi, 22. apríl 2015.

Birgir Ármannsson,
form., frsm.
Vilhjálmur Bjarnason. Ásmundur Einar Daðason.
Elín Hirst. Frosti Sigurjónsson. Katrín Jakobsdóttir.
Óttarr Proppé.