Ferill 391. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1333  —  391. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um Haf- og vatna­rannsóknir.

Frá meiri hluta atvinnuveganefndar (JónG, PJP, HarB, ÁsF, BjÓ, HE).


    Á eftir 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða komi ný málsgrein, svohljóðandi:
    Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar sem ráðnir verða til starfa hjá hinni nýju stofnun halda réttindum sem þeir hafa áunnið sér um námsleyfi og lengdan uppsagnarfrest samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra náttúrufræðinga og fjármálaráðherra sem miðast við samfellt starf hjá sömu stofnun.