Ferill 694. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1492  —  694. mál.

2. umræða.


Nefndarálit



um frumvarp til laga um breytingu á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu búvöru,
lögum um Matvælastofnun og tollalögum (stjórnsýsluverkefni, ónýttar og skertar
beingreiðslur, gæðastýrð sauðfjárframleiðsla).

Frá minni hluta atvinnuveganefndar.


    Minni hlutinn er ekki mótfallinn frumvarpinu en getur ekki stutt það þar sem meiri hlutinn hefur lagt til að við bætist ákvæði sem felli brott heimild ráðherra í 3. mgr. 65. gr. laganna til að láta hlutkesti ráða úthlutun þegar umsóknir berast um meiri innflutning en sem nemur tollkvóta.
    Minni hlutinn leggur til breytingu á breytingartillögu meiri hlutans sem gengur í þveröfuga átt, þ.e. að heimild ráðherra til annars en að láta hlutkesti ráða í framangreindum tilvikum verði felld brott. Rökin fyrir þeirri tillögu eru dómar sem féllu nýverið í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að það að ráðherra hefði val um hvorri aðferð 3. mgr. 65. gr. væri beitt fæli í sér að hann hefði ákvörðunarvald um hvort skattur væri lagður á eða ekki. Minni hlutinn leggur til að orðin „eða leita tilboða í heimildir til innflutnings samkvæmt tollkvótum og skal andvirðið þá renna í ríkissjóð“ í 3. mgr. 65. gr. laganna falli brott og því skuli hlutkesti ráða ef tilboð berast umfram það sem tollkvóta nemur. Minni hlutinn telur óásættanlegt að lögfesta þá aðferð að tollkvótar séu boðnir út, enda fellur útboðskostn­aður á neytendur. Þá er þessi aðferð ekki til þess fallin að auka samkeppni í verslun en markmið tollkvóta er einmitt að örva samkeppni með landbúnaðarvörur milli landa.
    Minni hlutinn tekur undir það sjónarmið sem kom fram á árinu í skýrslu Samkeppniseftirlitsins um samkeppni á dagvörumarkaði að útboð á tollkvótum vegna innflutnings á kjöti, smjöri og ostum sé rétt að fella niður en verði það ekki gert leggur Samkeppniseftirlitið til að úthlutun verði án endurgjalds og að hlutkesti verði varpað sé ásókn umfram kvóta. Þá segir í skýrslunni að Samkeppniseftirlitið telji að með því að miða við hæsta verð í útboðum eins og gert hafi verið sé stuðlað að hærra matvöruverði.
    Minni hlutinn tekur einnig undir með ýmsum hagsmunasamtökum, m.a. Neytendasamtökunum, Samtökum verslunar og þjónustu og Félagi atvinnurekenda sem hafa bent á að útboðsleiðin vinni gegn almannahagsmunum, hækki vöruverð og hamli samkeppni. Þegar eftirspurn er umfram framboð hafa Neytendasamtökin talið betri leið að láta hlutkesti ráða við úthlutun á tollkvótum en að bjóða þá út, enda er ljóst að sá kostn­aður sem útboði fylgir lendir að hluta eða að fullu á neytendum.
    Minni hlutinn telur aðfinnsluvert að meiri hlutinn leggi til svo veigamikla breytingu á frumvarpinu, þ.e. að tollkvótum verði ávallt úthlutað með útboðum, án þess að fram hafi farið ítarleg umræða í nefndinni og án þess að hagsmunaaðilum og viðeigandi stofnunum hafi gefist færi á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við nefndina. Minni hlutinn átelur þetta, einkum þar sem um er að ræða mikilvægt hagsmunamál fyrir neytendur.
    Minni hlutinn leggur í sérstöku þingskjali til breytingu á breytingartillögu meiri hlutans sem hér hefur verið gerð grein fyrir.

Alþingi, 28. júní 2015.

Eldar Ástþórsson.