Ferill 581. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1495 — 581. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999, með síðari breytingum (undantekningar frá tryggingavernd).
(Eftir 2. umræðu, 29. júní.)
1. gr.
1. tölul. 6. mgr. 9. gr. laganna orðast svo: innstæður í eigu fjármálafyrirtækja, fjármálafyrirtækja í slita- eða gjaldþrotameðferð og fyrirtækja sem hafa misst starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki.2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda á næsta gjalddaga iðgjaldagreiðslna í sjóðinn.